Innlendir hlutabréfasjóðir seldu mest í Íslandsbanka og Brimi í júní en bættu helst við eign sína í JBT Marel, Kaldvík og Símanum. Þetta kemur fram í samantekt greiningarfyrirtækisins Akkurs á eignasöfnum flestra innlendra hlutabréfasjóða. Hún byggist á upplýsingum sem sjóðirnir birta sjálfir um tíu stærstu eignir sínar og stærð sjóðanna í lok hvers mánaðar. Akkur áætlar að nettósala sjóðanna í Íslandsbanka hafi numið 849 milljónum króna í júní. Þar á eftir komu Brim, þar sem salan nam um 520 milljónum króna, og Amaroq Minerals, þar sem sjóðirnir seldu fyrir um 320 milljónir. Þá var áætluð nettósala í Arion banka um 201 milljón króna, í Kviku 153 milljónir, Síldarvinnslunni 127 milljónir, Oculis 121 milljón og Nova 95 milljónir. Mest var keypt í JBT Marel, fyrir um 188 milljónir króna. Kaup í Kaldvík námu um 99 milljónum, í Símanum 82 milljónum, í Högum 69 milljónum og í Alvotech 63 milljónum króna. Tölurnar eru nálgun Akkurs á nettókaupum og -sölu og byggjast á breytingum á eign sjóðanna milli mánaða. Þær eru því ekki staðfest yfirlit yfir einstök viðskipti. Stærstan hluta sölunnar í Íslandsbanka má rekja til tveggja sjóða. Kvika – Innlend hlutabréf seldi samkvæmt matinu fyrir um 506 milljónir króna og ÍV Hlutabréf fyrir um 343 milljónir. IS Equus Hlutabréf seldi jafnframt fyrir um 165 milljónir króna. Nokkrir aðrir sjóðir bættu hins vegar við stöðu sína í bankanum, meðal annars Landsbréf – Úrvalsbréf fyrir 64 milljónir króna og Stefnir – Innlend hlutabréf fyrir 37 milljónir. Kaupin í JBT Marel dreifðust á fleiri sjóði. ÍV Hlutabréf keypti fyrir um 103 milljónir króna og Landsbréf – Öndvegisbréf fyrir 80 milljónir. Stefnir – Innlend hlutabréf seldi hins vegar fyrir um 34 milljónir króna. Arion banki stærsta sameiginlega eignin Arion banki var stærsta samanlagða eign þeirra ellefu sjóða sem samantekt Akkurs nær til í lok júní og vó 9,6% í eignasöfnum þeirra. JBT Marel kom næst með 7,4% vægi og Íslandsbanki með 7,2%. Festi vó 4,3%, Hagar 3,9% og Brim og Kaldvík hvort um sig 3,2%. Bera nam 3,1% af samanlögðu eignasafni sjóðanna og Reitir 2,7%. Samanlögð stærð þeirra ellefu sjóða sem Akkur tók saman nam 66,8 milljörðum króna. Stærstur var Stefnir – Innlend hlutabréf, með eignir upp á 19,6 milljarða. Landsbréf – Úrvalsbréf var um ellefu milljarðar að stærð og Kvika – Innlend hlutabréf rúmlega átta milljarðar. Breyting á vægi félags milli mánaða jafngildir þó ekki endilega kaupum eða sölu. Vægið getur einnig hreyfst vegna verðbreytinga á bréfum félagsins og öðrum eignum sjóðsins. Mat Akkurs á kaupum og sölu byggist því á breytingum á fjölda hluta en ekki aðeins hlutfallslegu vægi. Sjá einnig Eign heimila í hlutabréfasjóðum aðeins 2% af innlánum