Gildi lífeyrissjóður, þriðji stærsti lífeyrissjóður landsins, hefur selt hlutabréf í Íslandsbanka og Arion banka fyrir hátt í 4 milljarða króna frá byrjun júní. Tímasetningin á sölunni hefur vakið töluverða athygli í ljósi þess að velta á hlutabréfamarkaðnum er tiltölulega lítil á þessum tíma árs og stór viðskipti eru því líklegri til þess að hafa meiri áhrif á verðmyndun á markaði. Orðrómur á markaðnum er sá að Gildi sé að draga úr hlutafjáreign sinni í bönkunum tveimur vegna hugsanlegrar sameiningar við Festu lífeyrissjóð, en tilkynnt var 11. júní að formlegar sameiningarviðræður væru hafnar. Viðmælendur Viðskiptablaðsins á íslenskum fjármálamarkaði skilja lítið í að sjóðurinn velji að selja í júlí þegar markaðurinn er, eins og jafnan á þessum árstíma, nánast sofandi og tiltölulega lítil kaup eða sölur geta haft veruleg áhrif á verðmyndun. Í byrjun júlí fór gengi hlutabréfa Íslandsbanka undir 140 krónur í fyrsta sinn síðan í apríl. Frá byrjun júní hefur Gildi selt 0,9% hlut í Íslandsbanka fyrir rúmlega 2,2 milljarða króna og 0,6% hlut í Arion banka fyrir rúma 1,6 milljarða, sé miðað við meðalgengi hlutabréfa bankanna yfir þetta tímabil. Svo virðist sem sjóðurinn sé hættur að selja í Íslandsbanka en haldi áfram sölu í Arion banka. Gildi á áfram 9,1% hlut í Arion banka sem er um 23,2 milljarðar króna að markaðsvirði og 7,2% hlut í Íslandsbanka sem er um 17,6 milljarðar króna að markaðsvirði. Festa á 2,7% hlut í Arion og 1,2% hlut í Íslandsbanka. Ekki náðist í forsvarsmenn Gildis við vinnslu fréttarinnar. Hlutabréfaverð Arion banka hefur lækkað um 4% síðastliðinn mánuð. Stjórnir Gildis lífeyrissjóðs og Festu lífeyrissjóðs tilkynntu 11. júní að formlegar viðræður væru hafnar um mögulega sameiningu sjóðanna. Markmið viðræðnanna er að meta hvort sameining sé hagfelld fyrir sjóðfélaga beggja sjóða og hvort hún geti skilað aukinni stærðarhagkvæmni, bættri þjónustu og öflugri lífeyrissjóði til framtíðar. Sjóðirnir telja jafnframt að þeir séu líkir að uppbyggingu, meðal annars með mjög sambærilegt réttindakerfi og samþykktir. Sjá einnig Gildi og Festa hefja sameiningarviðræður Gangi sameiningin eftir verður til næststærsti lífeyrissjóður landsins með um 1.600 milljarða króna í eignum, miðað við stöðu sjóðanna í lok síðasta árs. Eignir Gildis námu 1.225 milljörðum króna og eignir Festu 347 milljörðum króna. Viðræðurnar eru hluti af áframhaldandi samþjöppun í íslenska lífeyrissjóðakerfinu. Almenni og Lífsverk sameinuðust um síðustu áramót og sameinaður sjóður hefur hafið könnunarviðræður við SL lífeyrissjóð, sem áður hét Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda. Þá hafa Frjálsi lífeyrissjóður og Lífeyrissjóður bænda einnig unnið að sameiningu, en Lífeyrissjóður verzlunarmanna og Birta ákváðu í júní að hætta við frekari samrunaviðræður.