Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gildi sagt á sölu­hliðinni í milljarða­við­skiptum

Read Full Article →

Um­fangs­mikil við­skipti hafa farið fram með hluta­bréf í Arion banka tvo við­skipta­daga í röð. Á föstu­dag fóru fram um 2,5 milljarða króna viðskipti er 13 milljónir hluta í bankanum á genginu 191 króna á hlut skiptumst um hendi í stökum við­skiptum skömmu eftir klukkan þrjú. Sam­kvæmt heimildum Við­skipta­blaðsins var líf­eyris­sjóðurinn Gildi á sölu­hliðinni. Ekki er vitað hver keypti bréfin. Tölu­vert minni, en engu að síður stór við­skipti á mæli­kvarða ís­lenska hluta­bréfa­markaðarins, fóru síðan fram í dag. Rétt eftir klukkan tvö fóru pöruð við­skipti fram með 1,3 milljónir hluta í Arion banka á genginu 192 krónur. Verðmæti þeirra nam 249,6 milljónum króna. Um hálftíma síðar, eða um klukkan hálfþrjú, fóru síðan þrjár milljónir hluta í bankanum á genginu 191 króna. Verðmæti þeirra við­skipta nam 573 milljónum króna. Saman­lagt námu þessi tvenn stóru við­skipti dagsins því tæp­lega 823 milljónum króna. Hluta­bréf Arion banka lokuðu í 194 krónum í dag og hækkuðu um 2,1% frá föstu­degi. Heildar­velta með bréf bankans nam um 1,1 milljarði króna í 29 við­skiptum. Dregur úr vægi inn­lendra eigna Heimildir Við­skipta­blaðsins herma að Gildi hafi að undan­förnu unnið að því að draga úr vægi inn­lendra eigna í eigna­safni sínu. Sjóðurinn hafi meðal annars verið á sölu­hliðinni í Arion banka, Ís­lands­banka, Reitum og Festi. Á móti sé stefnt að því að auka vægi er­lendra eigna en Gildi greindi frá því í dag að sjóðurinn væri að kynna nýja fjár­festingar­leið fyrir sér­eignar­sparnað þar sem allt eigna­safnið verður ávaxtað í er­lendri mynt. Um 60% eignanna verða að jafnaði í er­lendum hluta­bréfum og 40% í er­lendum skulda­bréfum. Sjá einnig Kynna sér­eignar­leið sem er 100% í er­lendum eignum Nýja sér­eignar­leiðin segir þó ekki ein og sér til um fjár­festingar­stefnu sam­tryggingar­deildar sjóðsins. Heimildir Við­skipta­blaðsins herma engu að síður að sala sjóðsins á inn­lendum eignum tengist aukinni áherslu á er­lendar fjár­festingar í eigna­safninu. Sam­eining gæti kallað á frekari sölu Stjórnir Gildis og Festu líf­eyris­sjóðs ákváðu í júní að hefja viðræður um mögu­lega sam­einingu sjóðanna. Gangi hún eftir yrði sam­einaður sjóður sá næst­stærsti á landinu með um 1.600 milljarða króna í eignum. Fyrir­huguð sam­eining gæti jafn­framt skýrt að hluta hvers vegna Gildi hefur dregið úr eignar­hlut sínum í Arion banka. Sam­einaður sjóður færi með nærri 12% hlut í bankanum miðað við þáverandi eignar­hluti sjóðanna. Tíu pró­senta eignar­hlutur í fjár­mála­fyrir­tæki telst virkur eignar­hlutur sam­kvæmt lögum og um slíka eign fylgja sér­stakar kröfur og eftir­lit. Það er þó ekki al­mennt lög­bundið há­mark sem bannar líf­eyris­sjóði að eiga meira en 10% í banka. Stærri líf­eyris­sjóðir hafa engu að síður al­mennt forðast að fara yfir þau mörk, meðal annars vegna þeirra skyldna, samþjöppunaráhættu og mögu­legu áhrifa sem fylgja virkri eignar­hlut­deild. Ekki liggur fyrir stað­festing á því að fyrir­huguð sam­eining hafi ráðið sölu Gildis, en hún gæti hafa aukið þörf sjóðsins fyrir að minnka stöðuna áður en til sam­einingar kæmi. Selt banka­bréf fyrir milljarða Inn­herji greindi frá því um miðjan mánuðinn að Gildi hefði frá lokum júní selt hluta­bréf í Arion banka og Ís­lands­banka fyrir saman­lagt meira en þrjá milljarða króna. Sjóðurinn hafði sam­kvæmt fréttinni selt um 15,3 milljónir hluta í Ís­lands­banka, eða sem jafn­gilti nærri 1% hlut í bankanum, fyrir áætlaðan 2,1 milljarð króna. Gildi hafði jafn­framt selt sam­tals 7,85 milljónir hluta í Arion banka í júní og á fyrstu tíu dögum júlí. Sölu­and­virði þeirra við­skipta var áætlað nálægt 1,5 milljörðum króna. Bætist sala föstu­dagsins að fullu við þá sölu hefur Gildi selt 20,85 milljónir hluta í Arion banka frá byrjun júní fyrir saman­lagt um fjóra milljarða króna, miðað við gengi við­skiptanna á hverjum tíma. Gildi var fyrir söluna einn stærsti hlut­hafi Arion banka. Sam­kvæmt Inn­herja nam eignar­hlutur sjóðsins ríf­lega 9% um miðjan júlí og var þá metinn á um 23 milljarða króna.

Share this article