Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Friðarviðræðum Úkraínu og Rússlands lokið eftir tveggja daga fundahöld

Read Full Article →

Friðarviðræðum Úkraínu og Rússlands í svissnesku borginni Genf með milligöngu Bandaríkjanna er lokið eftir tveggja daga fundarhöld. Yfirmaður rússnesku samninganefndarinnar segir viðræðurnar hafa verið erfiðar en markvissar og yfirmaður úkraínsku nefndarinnar segir viðræðunum miða áfram. Viðræðurnar hófust í gær og AFP hafði eftir ónafngreindum rússneskum heimildarmanni að mikil spenna hafi verið á þeim fundi. Hann tók sex klukkutíma. Steve Witkoff, sérstakur erindreki Bandaríkjastjórnar og aðalsamningamaður þeirra, sagði þó að viðræðum hefði miðað vel. Fundur samninganefndanna í dag var þó töluvert styttri, aðeins tveir klukkutímar. Hvorki Úkraínumenn né Rússar létu nokkuð uppi um hvað var rætt á fundinum eða hvort þeir hefðu náð einhverju samkomulagi. Báðar sendinefndir gáfu til kynna að viðræðurnar hefðu verið erfiðar. Rússneskir fjölmiðlar hafa eftir Vladimir Medinsky, yfirmanni samninganefndar Rússlands, að viðræðurnar hefðu verið erfiðar en markvissar. Rustem Umerov, yfirmaður samninganefndar Úkraínu, sagði við fréttamenn að loknum fundinum í dag að framfarir hafi orðið í viðræðunum. „Við einbeitum okkur að því að vinna úr lykilatriðum sem þarf til að ljúka ferlinu. Þetta er flókið verkefni sem krefst samstöðu allra aðila og tíma. Viðræðum miðar áfram en ég get ekki farið út í smáatriði á þessu stigi.“ Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, sakaði Rússa í morgun, þegar viðræðurnar voru enn í gangi, um að draga þær á langinn og að fyrsti dagur þeirra hafi verið erfiður. Rússnesk stjórnvöld halda enn til streitu kröfum sínum um landsvæði í Úkraínu og stjórnvöld þar hafa alltaf þvertekið fyrir að láta landsvæði af hendi. Úkraínumenn segjast ekki ætla að undirrita vopnahlés- eða friðarsamkomulag án öryggistrygginga sem fæla Rússa frá því að gera aftur innrás inn í Úkraínu. Rússar hafa innlimað um 20 prósent landsins, þar á meðal stóran hluta Dobas-héraðs í austurhluta Úkraínu.

Share this article