Friðarviðræðum Rússa og Úkraínumanna verður fram haldið í svissnesku borginni Genf í dag með milligöngu Bandaríkjamanna. Hægt virðist miða í samkomulagsátt. Viðræðurnar hófust að nýju í gær og engin merki virtust um að þokaðist í samkomulagsátt til að ljúka þessum mannskæðustu átökum í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Friðarumleitanir Bandaríkjamanna hafa hingað til runnið út í sandinn og AFP hefur eftir ónafngreindum rússneskum heimildarmanni að mikil spenna hafi ríkt á sex tíma fundi gærdagsins. Steve Witkoff, aðalsamningamaður Bandaríkjanna, sagði þó vel hafa miðað. Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti dró friðarvilja Rússa enn í efa í daglegu ávarpi sínu en kvaðst sjálfur þegar hafa lýst vilja til að ganga að skilyrðum sanngjarns samnings frá Bandaríkjunum svo ljúka mætti stríðinu. Zelensky sagði Rússa fremur einbeita sér að eldflaugaárásum á Úkraínu en viðræðum um frið. Á þriðjudag verða liðin fjögur ár frá upphafi innrásarstríðsins sem hefur kostað hundruð þúsunda mannslífa, stökkt milljónum á vergang og lagt heilu borgirnar í rúst.