- What: Peace talks between Russia and Ukraine are set to resume in Geneva amid ongoing attacks.
- Impact: The attacks undermine the peace talks and demonstrate the challenges in achieving a ceasefire.
Samningamenn Rússlands og Úkraínu hittast í Genf í Sviss í dag til að ræða um vopnahlé. Þetta er þriðja lota viðræðna með milligöngu bandarískra stjórnvalda. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði við fréttamenn um borð í flugvél forsetaembættisins að Úkraínumenn yrðu að vera fljótir að koma sér að samningaborðinu. Takmarkaður friðarhugur virðist vera utan fundarherbergjanna því Rússar skutu 29 eldflaugum og 396 drónum að Úkraínu í nótt. Andriy Sybiga, utanríkisráðherra Úkraínu, sagði þetta til marks um viðhorf Rússa til friðarviðræðnanna. Rússar sögðu að Úkraínumenn hefðu skotið meira en 150 drónum að sér.