- What: Russia, Ukraine, and the United States will hold trilateral talks in Geneva next week.
- Impact: The talks aim to address the ongoing conflict between Russia and Ukraine.
Næstu þríhliða viðræður milli samninganefnda Rússlands, Úkraínu og Bandaríkjanna verða haldnar í Genf í Sviss á þriðjudag og miðvikudag, samkvæmt talsmanni stjórnvalda í Rússlandi, Dimitry Peskov. Peskov sagði í viðtali við rússnesku sjónvarpsstöðina RIA Novosti að samninganefnd Rússlands verði leidd af Vladimir Medinsky, fyrrum menningarmálaráðherra sem hefur verið skipt út fyrir háttsetta hershöfðingja sem leiddu samninganefndir Rússa á fyrri fundum. Breytingar á samninganefnd Rússa eru sagðar tilkomnar vegna morðtilraunar á einum samningamanni nefndarinnar í Moskvu fyrr í mánuðinum, sem Rússar segja að hafi verið skipulögð frá Kyiv. Fyrri fundir í þríhliðaviðræðum voru haldnar í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum fyrr á þessu ári og voru viðræður samninganefndanna sagðar uppbyggilegar. Þó vanti enn mikið upp á að stjórnvöld í Moskvu og Kyiv komist að samkomulagi um þau landsvæði sem Rússar hafa náð undir sig í Úkraínu.