Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hélt hreinu gegn Spáni og fjölgaði fylgjendum um sex milljónir

Read Full Article →

Markvörðurinn Vozinha er lifandi fótboltagoðsögn á Grænhöfðaeyjum, en var líklega ekki á radarnum hjá fótboltaáhugafólki annars staðar í heiminum fyrir frumraun Grænhöfðaeyja á HM í fótbolta í gær. Þar mætti liðið Evrópumeisturum Spánar og náði markalausu jafntefli. Vozinha sem varð fertugur fyrr í mánuðinum var öryggið uppmálað í marki Grænhöfðaeyja allan leikinn, en þurfti líka nokkrum sinnum að taka vel á því til að verja vel. Áhorfendum HM hefur greinilega líkað vel við þennan fertuga markvörð, sem spilar með portúgalska B-deildarliðinu Chaves, því fylgjendafjöldi hans á Instagram rauk upp eftir leik. Vozinha sem heitir fullu nafni Josimar José Évora Dias var með 50 þúsund fylgjendur á Instagram fyrir leik, en nú þegar þessi frétt er skrifuð eru fylgjendurnir orðnir ríflega sex milljónir. Þetta minnir óneitanlega á frumraun Íslands á HM árið 2018 þegar fylgjendafjöldi Rúriks Gíslasonar jókst upp úr öllu valdi eftir að hann kom inn á sem varamaður á móti Argentínu. Ekki fer þó sögum af því hvort fylgisaukning Vozinha sé að miklum meirihluta frá Suður-Amerísku kvenfólki eins og var í tilfelli Rúriks fyrir átta árum.

Share this article