Innlent | Morgunblaðið | 2.7.2026 | 23:20 Grænhöfðeyingar standa saman Elsa Morgado og fjölskylda munu fylgjast með Grænhöfðaeyjum mæta Argentínu í 32-liða úrslitum. mbl.is/Karítas Flóki Larsen [email protected] Setja bókamerki Karlalandslið Grænhöfðaeyja í fótbolta mætir feiknasterkum Argentínumönnum í 32 liða úrslitum á HM annað kvöld, eftir þrjú jafntefli. Þjóðin er sú minnsta til að ná þeim árangri en hún telur aðeins um 600.000 íbúa. Elsa Morgado og fjölskylda hennar hafa búið hér á landi í áratugi og horfa á alla leiki þjóðarinnar á HM með löndum sínum í Reykjavík. Hún ræddi við Morgunblaðið í aðdraganda leiksins og segist hafa fulla trú á því að Grænhöfðaeyjar muni sigra ríkjandi heimsmeistara. „Ég er búin að búa hérna í 31 ár en mamma kom hingað árið 1990,“ segir Elsa en þau komu frá borginni Mindelo, á São Viçente-eyju. Þar kynnist móðir Elsu Íslendingum sem bjuggu á Grænhöfðaeyjum vegna þróunaraðstoðarverkefnis sem fólst meðal annars í því að hjálpa heimamönnum við fiskveiði. Í kjölfarið flutti hún til Íslands og sótti börnin til Grænhöfðaeyja nokkrum árum seinna. Gaman er að geta þess að viðmælandinn í greininni hér að neðan bjó í sömu borg og starfaði í téðu þróunarverkefni sem skipstjóri. Í byggðarlaginu búa um 75.000 manns í dag. Ólst upp með Vozinha Eiginmaður Elsu ólst upp og spilaði fótbolta við hlið markmannsins, Vozinha, sem hefur haldið markinu hreinu í tveimur af þremur leikjum fyrir Grænhöfðeyinga á heimsmeistaramótinu. Hann var valinn maður leiksins þegar hann gerði það á móti Evrópumeisturunum, Spánverjum. „Maður þekkir hann alveg ótrúlega vel. Það er skrýtið að sjá hann núna þegar hann er allt í einu orðinn frægur.“ Er hann orðinn að þjóðhetju? „Já, hann er bara hetja í alvörunni,“ segir Elsa um markmanninn. „Rosalega stolt“ Hafið þið fjölskyldan horft á alla leikina saman? „Auðvitað og við erum alveg rosalega stolt. Við bjuggumst ekki við því að Grænhöfðaeyjar myndu standa sig svona vel eins og liðið hefur gert og komast svona langt,“ svarar Elsa en eins og sjá má á myndinni er fjölskyldan dyggur stuðningsmannahópur sem klæðir sig upp í landsliðstreyjur fyrir áhorfið. Ætlið þið að horfa á leikinn á morgun? „Ó já. Við grænhöfðeyska fólkið stöndum alltaf saman,“ segir Elsa en hún segir um það bil 36 Grænhöfðeyinga búa á Íslandi. Fjölskyldan hefur í kringum leiki HM boðið löndum sínum að horfa á landsliðið með sér á Center Hotels, Laugavegi, þar sem eiginmaður hennar starfar sem kokkur. Elsa og eiginmaður hennar þekkja Vozinha vel. AFP/Michael Steele Hann hefur tekið sig til og eldað cachupa fyrir landa sína til að borða yfir leiknum. Það er þjóðarréttur Grænhöfðeyinga sem mætti lýsa sem hægeldaðri kássu með maís, baunum og einhvers konar kjöti eða fiski. Dóttirin spilar með Val Eins og fram hefur komið spilaði eiginmaður Elsu fótbolta á sínum yngri árum en dóttir þeirra Elsu hefur nú tekið við kyndlinum. Hún stendur sig vel í boltanum með 3. flokki kvenna í Val og spilar oftast með A-liðinu að sögn Elsu sem játar því aðspurð að hún hafi hæfileikana frá pabba sínum. Líkar lífið vel á Íslandi Elsa og fjölskylda hennar hafa komið sér vel fyrir í Reykjavík en Elsa hefur nýlega stofnað fyrirtækið Amora, sem er nefnt í höfuðið á dóttur Elsu, og sinnir bæði þrifþjónustu og túlkaþjónustu fyrir portúgölsku- og spænskumælandi fólk. Portúgalska er opinbert móðurmál Grænhöfðeyinga en kreólska er einnig töluð í landinu sem samanstendur af alls tíu eyjum vestan við strendur Afríku í Atlantshafi. Byggð er í öllum nema einni þeirra. Hvernig hefur fjölskyldunni liðið á Íslandi? „Ég elska Ísland, í alvörunni. Við höfum oft reynt að fara til Grænhöfðaeyja og viljað prófa að búa einhvers staðar þar sem er heitara.“ En börnin mín fæddust öll hérna og eru algjörir Íslendingar og vilja aldrei fara héðan. Þau eru alltaf á móti því að fara og vera einhvers staðar,“ segir Elsa. Messi getur slakað á Þetta er erfiður leikur sem er fram undan á móti Argentínu. Hafið þið trú á því að Grænhöfðaeyjar geti unnið? „Ó já. Grænhöfðaeyjar munu vinna. Og þeir ætla að vinna. Ég veit það. (Lionel) Messi getur bara verið rólegur og beðið og séð,“ segir Elsa létt í lund að lokum. Leikurinn fer fram á föstudagskvöldið klukkan tíu og verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Föllum á varnarleiknum í kvöld“ Grænhöfðeyingar standa saman Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Portúgal – Króatía, staðan er 0:0 Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Umræðan Tár, bros og tollar Við bætum lífskjörin með bættri samkeppnishæfni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samruninn hefði skapað hættu á þögulli samhæfingu Bjargað eftir átta daga leit Hvers vegna eru vextir svona háir? Skúraveður með hagléljum og eldingu Mest lesið Í gær Í vikunni Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Ákveðnar upplýsingar komu lögreglu á sporið Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Nýjast á mbl.is » „Föllum á varnarleiknum í kvöld“ Grænhöfðeyingar standa saman Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Portúgal – Króatía, staðan er 0:0 Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Umræðan Tár, bros og tollar Við bætum lífskjörin með bættri samkeppnishæfni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Bandero áfram vestan við landið Skipulagði innflutninginn í gegnum Signal Samruninn hefði skapað hættu á þögulli samhæfingu Mest lesið Í gær Í vikunni Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Ákveðnar upplýsingar komu lögreglu á sporið Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið