Lið Grænhöfðaeyja er komið upp úr H-riðli eftir jafntefli gegn Sádi-Arabíu í kvöld. Þetta er í fyrsta sinn sem liðið spilar á HM. Grænhöfðeyingar sóttu mun harðar en Sádi-Arabar í leiknum. Hvorugt liðið náði þá að skora mark og niðurstöður leiksins því 0-0 jafntefli. Lið Grænhöfðaeyja getur engu að síður fagnað úrslitunum en með jafnteflinu tryggði það sér annað sæti riðilsins og farmiða í 32-liða úrslit. Rautt spjald á loft á lokasekúndunum Í hinum leik riðilsins mættust Spánverjar og Úrúgvæjar. Það var ekki mikið um færi í leiknum. Úrúgvæjar komu tveimur skotum á rammann en Spánverjar aðeins einu. Úr því kom mark frá Álex Baena á 42. mínútu. Fleiri urðu mörkin ekki en skömmu áður en flautað var til leiksloka fékk Agustin Canobbio beint rautt spjald eftir að hann tæklaði Pau Cubarsi harkalega. Úrúgvæ endar því í þriðja sæti riðilsins með tvö stig og á engan möguleika á að komast áfram. Liðið hefur unnið HM í tvígang, 1930 og 1950. Sádi-Arabía endaði á botni riðilsins, einnig með tvö stig.