Innlent | Morgunblaðið | 3.6.2026 | 6:00 Andlát: Steingrímur Ari Arason Steingrímur Ari Arason. Setja bókamerki Steingrímur Ari Arason, hagfræðingur og fv. forstjóri Sjúkratrygginga og Lánasjóðs ísl. námsmanna, lést 1. júní, á 73. aldursári. Steingrímur fæddist í Reykjavík 31. desember 1953. Foreldrar hans voru Hjördís Úlla Zebitz, f. í Danmörku 1928, d. 1967, og Þorvaldur A. Arason lögfræðingur, f. 1928 á Víðimýri í Skagafirði, d. 1996. Steingrímur var elstur fjögurra systkina. Þau eru Vilhjálmur Ari, f. 1956, Kristján Ari, f. 1958, og Guðrún Ara, f. 1960. Steingrímur tók stúdentspróf frá MR árið 1973, viðskiptafræðipróf frá Háskóla Íslands 1979 og lauk mastersprófi í hagfræði árið 1983 í Háskólanum í Uppsölum í Svíþjóð. Hann var grunnskólakennari í Ólafsvík veturinn eftir stúdentspróf og kenndi við Verzlunarskóla Íslands 1978-1979. Að loknu námi í Svíþjóð var hann ráðinn hagfræðingur Verslunarráðs Íslands, nú Viðskiptaráðs, og starfaði þar til 1991, er hann varð aðstoðarmaður Friðriks Sophussonar fjármálaráðherra. Því starfi gegndi hann til 1998 og tók þá við stöðu framkvæmdastjóra Lánasjóðs íslenskra námsmanna, LÍN. Steingrímur var hjá LÍN þar til hann var skipaður forstjóri Sjúkratrygginga Íslands haustið 2008. Hann lét af því embætti árið 2018. Síðustu árin starfaði Steingrímur m.a. í fjármálaráðuneytinu og var stjórnarformaður Vigdísarholts, sem rekur hjúkrunarheimilin Sunnuhlíð í Kópavogi, Seltjörn á Seltjarnarnesi og Skjólgarð á Höfn í Hornafirði. Steingrímur var virkur í stúdentapólitíkinni á sínum tíma og átti síðar sæti í ýmsum nefndum og ráðum fyrir hönd ríkisins. Helst ber að nefna framkvæmdanefnd um einkavæðingu. sem hann sat í árin 1991-2002. Einnig var hann í eftirlitsnefnd Norræna fjárfestingabankans. Eftirlifandi eiginkona Steingríms Ara er Linda Rós Michaelsdóttir fv. framhaldsskólakennari, f. 1951. Börn þeirra eru Herdís, f. 1980, Valborg, f. 1982, og Vilhjálmur, f. 1985. Barnabörnin eru sjö talsins. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Aðdáendur reyndu að klippa af henni hárið Hægviðri og víða skúrir Erfitt að glíma við ytri áföll Andlát: Steingrímur Ari Arason Seðlabankastjóri gagnrýnir skýrsluna Umræðan 200 mílurnar mótuðu hagsæld þjóðarinnar Með 5% hlutdeild í einum alþingismanni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Meiri svartsýni í fréttum en raunveruleikinn sýnir Umræðan verið „óvægin, ósanngjörn og röng“ „Skelfilega erfið mál“ Beint: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Mest lesið Í gær Í vikunni Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Gáfust upp á að leggja próf fyrir nemendur Lögmaður kærður fyrir að draga sér talsvert fé Borgin eigi ekki að reka utanríkisstefnu Andlát: Margrét Jónsdóttir Láta vélmenni slá gras á Klambratúni Umfangsmiklir húsflutningar gengu vel Stefna að upptöku evru Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Andlát: Margrét Jónsdóttir Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Nýjast á mbl.is » Aðdáendur reyndu að klippa af henni hárið Hægviðri og víða skúrir Erfitt að glíma við ytri áföll Andlát: Steingrímur Ari Arason Seðlabankastjóri gagnrýnir skýrsluna Umræðan 200 mílurnar mótuðu hagsæld þjóðarinnar Með 5% hlutdeild í einum alþingismanni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Endurskoða Suðurlandsbraut strax Nýr langtímasamningur við Ljósið í höfn Fólk vill „burt með þetta rugl“ Nýjar loftmyndir sýna Ölfusárbrú taka á sig mynd Mest lesið Í gær Í vikunni Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Gáfust upp á að leggja próf fyrir nemendur Lögmaður kærður fyrir að draga sér talsvert fé Borgin eigi ekki að reka utanríkisstefnu Andlát: Margrét Jónsdóttir Láta vélmenni slá gras á Klambratúni Umfangsmiklir húsflutningar gengu vel Stefna að upptöku evru Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Andlát: Margrét Jónsdóttir Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Fangi á Hólmsheiði lést í nótt