Innlent | Morgunblaðið | 4.7.2026 | 7:00 Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Setja bókamerki Hallgrímur Jónasson flugstjóri lést á líknardeild Landspítalans mánudaginn 29. júní eftir erfiða glímu við krabbamein. Hann var á 81. aldursári. Hallgrímur fæddist á Akureyri 9. júlí 1945, sonur hjónanna Guðbjargar Hallgrímsdóttur frá Húsavík og Jónasar B. Jónssonar frá Vopnafirði. Systur hans voru Hervör Jónasdóttir og Þorgerður Bjarnadóttir. Hann ólst upp á Akureyri og lauk prófi frá Gagnfræðaskóla Akureyrar árið 1961. Hann stundaði nám í Bretlandi 1962-1963 og hóf síðar flugnám hjá Tryggva Helgasyni á Akureyri. Hann lauk atvinnuflugmannsprófi frá Flugskóla Flugsýnar í Reykjavík 1966, auk prófs í loftsiglingafræði og flugkennararéttinda. Síðar öðlaðist hann flugstjóraréttindi í Bandaríkjunum og Danmörku. Hallgrímur starfaði sem flugmaður og flugstjóri hjá Flugsýn, Flugfélagi Íslands, Sterling Airways og síðar Flugleiðum. Þá flaug hann um árabil DC-3-landgræðsluflugvélinni Páli Sveinssyni. Árið 1986 veiktist Hallgrímur alvarlega og gekkst undir hjartaaðgerð í Bandaríkjunum en í kjölfarið lét hann af störfum sem atvinnuflugmaður. Flugáhugi hans var þó samur við sig, hann átti eigin flugvél og tók þátt í starfi Flugklúbbs Mosfellsbæjar. Eftir flugferilinn gegndi Hallgrímur stjórnunar- og sérfræðistörfum hjá Olís, Flugmálastjórn, Mastercard og Borgun. Hann lét einnig til sín taka í félagsmálum, einkum innan Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA), þar sem hann sat í stjórn, gegndi embætti varaformanns, sat í samninganefndum og var formaður öryggisnefndar félagsins á árunum 1973-1982. Þá var hann ötull hestamaður, var formaður Hestamannafélagsins Gusts í Kópavogi um hríð, starfaði einnig fyrir Landssamband hestamanna og var fararstjóri íslenska landsliðsins á alþjóðamótum. Hallgrímur lætur eftir sig börnin Björgvin P., Sirrý, Írisi Björk og Pálu auk þriggja barnabarna. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Segir kommúnismann á uppleið Finnland hefur ekki forspárgildi Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Vill sjá eftirmál af leka saksóknarans Pistill: Lýðræðiskennsla Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Kælum okkur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir markmiðin með styttingu hafa náðst Verð á gramminu ekki fylgt verðlagsþróun Hætt við þéttingu í Grafarvogi Bjargað eftir átta daga leit Mest lesið Í gær Í vikunni Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Segir markmiðin með styttingu hafa náðst Hvað kostar að leigja sundskýlu? „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Synda frá Eyjum til lands í minningu Bríetar Safna ekki lengur upplýsingum um staðsetningu Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Andlát: Björn Ólafs Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Nýjast á mbl.is » Segir kommúnismann á uppleið Finnland hefur ekki forspárgildi Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Vill sjá eftirmál af leka saksóknarans Pistill: Lýðræðiskennsla Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Kælum okkur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hantaveirufaraldrinum lokið Synda frá Eyjum til lands í minningu Bríetar Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Sækja veikan mann á skemmtiferðaskipi Mest lesið Í gær Í vikunni Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Segir markmiðin með styttingu hafa náðst Hvað kostar að leigja sundskýlu? „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Synda frá Eyjum til lands í minningu Bríetar Safna ekki lengur upplýsingum um staðsetningu Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Andlát: Björn Ólafs Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita