Innlent | Morgunblaðið | 18.5.2026 | 6:00 Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Árni Tómas Ragnarsson. Setja bókamerki Árni Tómas Ragnarsson læknir fæddist í Reykjavík 19. janúar 1950. Hann lést 27. apríl 2026. Foreldrar hans voru þau Ragnar Tómas Árnason, útvarpsþulur og verslunarmaður, f. 13. mars 1917, d. 3. mars 1984, og Jónína Vigdís Kristjánsdóttir Schram læknaritari, f. 14. júní 1923, d. 28. mars 2007. Árni var Vesturbæingur og KR-ingur í húð og hár. Hann fæddist í húsi afa síns og ömmu, Láru og Kristjáns Schram, á Vesturgötunni og ólst upp í nánum tengslum við stórfjölskyldu sína. Þegar hann var átta ára gamall flutti fjölskyldan að Jörfa í útjaðri bæjarins en síðar festi hann kaup á húsi afa síns og ömmu við Vesturgötuna og bjó þar til dauðadags. Systkini Árna eru Kristján Tómas, f. 1943, Lára Margrét, f. 1947, d. 2012, Ásta Kristrún, f. 1952, og Hallgrímur Tómas, f. 1961. Árni lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1969 og kandídatsprófi frá læknadeild Háskóla Íslands 1976. Hann stundaði sérnám við Karólínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi og víðar í Svíþjóð og fékk sérfræðileyfi í gigtlækningum 1982. Á námsárunum og fyrstu starfsárum sínum vann Árni á flestum sjúkrahúsum Reykjavíkur og var héraðslæknir á Siglufirði og í Stykkishólmi. Fyrst eftir heimkomuna árið 1982 starfaði hann sem aðstoðarlæknir á Landakotsspítala en varð yfirlæknir Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar árið 1983 og gegndi því starfi í nær þrjátíu ár. Samhliða rak hann eigin stofu í Reykjavík sem sérfræðingur í gigtarsjúkdómum. Þá starfaði hann einnig um tíma sem sérfræðingur við Karólínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi og Central Lasarettet í Växjö í Svíþjóð. Árni var trúnaðarlæknir Landsbanka Íslands, Seðlabanka Íslands, Reiknistofu bankanna og Sinfóníuhljómsveitar Íslands og sinnti einnig störfum fyrir fleiri fyrirtæki og stofnanir. Fyrrverandi eiginkona Árna er Selma Guðmundsdóttir píanóleikari, f. 1950. Eftirlifandi eiginkona hans er Jóhanna Andrea Jónsdóttir foreldra- og uppeldisráðgjafi. Dóttir Árna og Jóhönnu er Andrea Elizabeth Gavern Árnadóttir, f. 1999. Börn Árna og Selmu eru Guðmundur, f. 1969, d. 1994, Ragnar lögmaður, f. 1970, Kristján Tómas, f. 1978, sérfræðingur í heimilislækningum, og Selma Lára, f. 1993, grafískur hönnuður. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Öflugur jarðskjálfti í Kína Víða bjart og hiti allt að 14 stigum Hildur Björnsdóttir ræður för í borginni Ætla að afgreiða ESB-tillögu í dag Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Umræðan Kosið um viðræður Tækifæri nýrra sveitarstjórna um allt land Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fundaði með fulltrúum í dag en flýtir sér ekki „Mikilvægt að útiloka Samfylkinguna“ Forsætisráðherra tókst ekki að fella meirihlutann Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin gaf upp vitlausar lokatölur í nótt Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Nærri 1.200 strikuðu yfir nafn Heiðu Bjargar Sveitarstjórnir bláar en ríkisstjórnin óhult Vilja skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Segir vaxandi óánægju með Framsókn í Skagafirði Íslendingar myndu borga með aðild Hópárás í miðborginni og nágranni á hlaupum Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Pétur: „Mjög svekktur“ Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Nýjast á mbl.is » Öflugur jarðskjálfti í Kína Víða bjart og hiti allt að 14 stigum Hildur Björnsdóttir ræður för í borginni Ætla að afgreiða ESB-tillögu í dag Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Umræðan Kosið um viðræður Tækifæri nýrra sveitarstjórna um allt land Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Að sjálfsögðu langar mig í stjórn“ Hreinn meirihluti Sjálfstæðisflokks í Kópavogi Breyta þrátt fyrir að meirihlutinn haldi Stolt af sínu fólki eftir varnarsigur Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin gaf upp vitlausar lokatölur í nótt Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Nærri 1.200 strikuðu yfir nafn Heiðu Bjargar Sveitarstjórnir bláar en ríkisstjórnin óhult Vilja skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Segir vaxandi óánægju með Framsókn í Skagafirði Íslendingar myndu borga með aðild Hópárás í miðborginni og nágranni á hlaupum Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Pétur: „Mjög svekktur“ Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“