Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Andlát: Árni Árnason

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 6.3.2026 | 6:00 Andlát: Árni Árnason Árni Árnason. Setja bókamerki Árni Árnason, fyrrverandi forstjóri Árvíkur hf., lést í gær, 5. mars, á krabbameinsdeild Landspítalans. Hann var 76 ára að aldri. Árni fæddist 26. apríl 1949. Foreldarar hans voru Guðmundur Árnason forstjóri og Halla Aðalsteinsdóttir húsfreyja. Hann var elstur fjögurra systkina, hin voru Aðalsteinn, Helga Lára og Margrét. Hann útskrifaðist með stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands 1970, lauk B.Sc.-gráðu í rekstrarhagfræði frá Háskólanum í Minnesota 1973 og MBA-gráðu frá sama háskóla 1974. Að námi í loknu gerðist hann hagfræðingur Verzlunarráðs Íslands sem síðar varð Viðskiptaráð, en tók við framkvæmdarstjórn ráðsins á árunum 1979 til 1987. Auk þess sinnti hann stjórnarstörfum fyrir Landsnefnd Alþjóðaverzlunarráðsins. Árni var skipaður heiðursfélagi Viðskiptaráðs rétt fyrir andlátið fyrir framlag í þágu viðskiptafrelsis og framfara í atvinnulífi. Árni var framkvæmdastjóri fjármálasviðs BYKO 1987 til 1991, þegar hann gerðist forstjóri Árvíkur, sem hann stofnaði ásamt föður sínum 1983. Hann sat einnig í stjórnum fjölmargra fyrirtækja og félaga, m.a. sem stjórnarformaður BYKO. Þá sat Árni í skólanefnd Verzlunarskóla Íslands frá 1990 og var formaður frá 1991-1998. Hann gegndi formennsku í stjórn Sjálfseignarstofnunar Verzlunarráðs Íslands um viðskiptamenntun (SVÍV) 1998-2000, en SVÍV stofnaði Viðskiptaháskólann í Reyjavík sem síðar varð Háskólinn í Reykjavík. Árni var ötull talsmaður frjálsra viðskipta og ritaði fjölmargar greinar í blöð og tímarit um stjórnun svo og viðskiptaleg og hagfræðileg málefni. Á seinni árum skrifaði hann einnig reglulega um stangveiði og skyld málefni, en fluguveiði var hans helsta áhugamál. Hann sat m.a. í stjórn veiðifélags um Svarthöfða og í stjórn Stangveiðifélagsins Stakkavíkur. Hann reit bókina Ingólfur Arnarson: Arfleifð hans og Íslandssagan í nýju ljósi , sem út kom 2022, og lauk nýverið við handrit að nýrri bók um veiðiflugur. Eftirlifandi eiginkona Árna er Jóhanna Gunnlaugsdóttir prófessor, f. 1949. Börn Árna og Jóhönnu eru Gunnlaugur, f. 1974, kvæntur Svövu Kristjánsdóttur, f. 1974, og Halla, f. 1977. Eiginmaður Höllu er Sveinn Kristinn Ögmundsson. Barnabörnin eru Ögmundur Árni, Gunnlaugur Árni, Kristján Árni og Jóhanna Margrét. Útför Árna verður gerð frá Kópavogskirkju 23. mars kl. 15. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hvassviðri með slyddu eða rigningu Hafði í fórum sínum tvo hnífa og piparúða Andlát: Árni Árnason Andlát: Eysteinn Helgason Eliza og stjörnurnar hafa blekkt augu í anda Ingibjargar Umræðan Lífeyrir fylgi launum Eigum við að veiða tonn eða verðmæti? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert ESB vill fá aðgang að olíuleiðslunni Beint: Hútar reiðubúnir að taka í gikkinn „Öryggið er fyrir öllu“ „Ekki hægt að „vippa upp 90 daga neyðarbirgðum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Snjókoma og hvassviðri í kortunum Íslenska mest töff tungumál í heimi Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Leigubílalögum breytt: Fyrra kerfi aftur tekið upp Hafnarsjóður greiðir risunum 91 milljón „Eignarrétturinn er friðhelgur“ Koma ekki í ár – endurkoma ekki útilokuð Tölvupósturinn var ekki mistök Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingar þurfi að liggja lágt Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Nýjast á mbl.is » Hvassviðri með slyddu eða rigningu Hafði í fórum sínum tvo hnífa og piparúða Andlát: Árni Árnason Andlát: Eysteinn Helgason Eliza og stjörnurnar hafa blekkt augu í anda Ingibjargar Umræðan Lífeyrir fylgi launum Eigum við að veiða tonn eða verðmæti? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Eignarrétturinn er friðhelgur“ Norðmenn pikkfastir í Mið-Austurlöndum Ráðherra vill afnema „neitunarvald“ landeigenda ESB vill fá aðgang að olíuleiðslunni Mest lesið Í gær Í vikunni Snjókoma og hvassviðri í kortunum Íslenska mest töff tungumál í heimi Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Leigubílalögum breytt: Fyrra kerfi aftur tekið upp Hafnarsjóður greiðir risunum 91 milljón „Eignarrétturinn er friðhelgur“ Koma ekki í ár – endurkoma ekki útilokuð Tölvupósturinn var ekki mistök Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingar þurfi að liggja lágt Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga

Share this article