Innlent | mbl | 13.3.2026 | 18:00 Hjálmar H. Ragnarsson látinn Hjálmar H. Ragnarsson 1952-2026. Ljósmynd/Jónatan Grétarsson Setja bókamerki Hjálmar H. Ragnarsson, tónskáld og fyrsti rektor Listaháskóla Íslands, lést í nótt, á 74. aldursári. Hjálmar var meðal ástsælustu tónskálda þjóðarinnar og forystumaður í uppbyggingu lista á Íslandi í áratugi. Tónleikar fóru fram í Hörpu sl. miðvikudagskvöld sem helgaðir voru leikhústónlist Hjálmars. Flutt voru verk hans úr sýningunum Yerma (1987), Pétur Gautur (1991) og Cyrano frá Bergerac (2001) sem settar voru upp í Þjóðleikhúsinu og Himnaríki og helvíti (2018) sem var sett upp í Borgarleikhúsinu. Yfirskrift tónleikanna var Öll veröldin er leiksvið. Frétt af mbl.is „Ég elska tónlistina hans“ Tónleikar voru í Hörpu til heiðurs leikhústónverka Hjálmars. Systurdóttir hans, Herdís Anna Jónasdóttir söngkona, stóð fyrir tónleikunum, hér þriðja frá hægri á myndinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson Hóf píanónám aðeins sex ára Hjálmar fæddist á Ísafirði 23. september 1952, sonur hjónanna Sigríðar Jónsdóttur Ragnar, kennara frá Gautlöndum í Mývatnssveit, og Ragnars H Ragnar, tónlistarskólastjóra, frá Ljótsstöðum í Laxárdal. Hjálmar byrjaði að læra á píanó hjá föður sínum við Tónlistarskóla Ísafjarðar þegar hann var sex ára gamall, og kom fram á ótal tónleikum í bænum, bæði sem einleikari og meðleikari með söngvurum, hljóðfæraleikurum og kórum. Tæplega 17 ára gamall fór hann til Reykjavíkur, hélt tónlistarnáminu áfram við Tónlistarskólann í Reykjavík jafnframt því að stunda nám við Menntaskólann í Reykjavík. Hjálmar H. Ragnarsson, tónskáld og fyrsti rektor Listaháskóla Íslands, er látinn, 73 ára að aldri. Ljósmynd/Fréttablaðið Brautryðjendaverk um Jón Leifs Að loknu stúdentsprófi fékk Hjálmar styrk til háskólanám í tónlist við Brandeis-háskólann í Boston í Bandaríkjunum og lauk BA prófi í tónsmíðum og tónfræði vorið 1974. Hann stundaði framhaldsnám í raf- og tölvutónlist í Utrecht í Hollandi og meistaranám í tónfræðum og tónsmíðum við Cornell-háskólann í Íþöku í New York ríki þaðan sem hann lauk prófi árið 1980. Lokaverkefni Hjálmars var fræðirannsókn um Jón Leifs og tónlist hans, sem þá var brautryðjendaverk á sviði tónlistarrannsókna á Íslandi og markaði upphaf að endurreisn tónlistar Jóns. Hjálmar var eitt atkvæðamesta tónskáld þjóðarinnar. Verk hans spanna allt frá einleiksverkum til stærri sinfónískra verka, og frá einsöngslögum til söngleikja og ópera. Hann samdi tónlist fyrir fjölda leiksýninga og kvikmynda, kórverk hans eru fjölmörg og þekkt bæði hér heima og erlendis og stóð vinna með kórum og sönghópum hjarta Hjálmars nærri, bæði sem tónskáld og stjórnandi. Hjálmar lét mikið að sér kveða í félagsstarfi listamanna og í menningarpólitík. Hann var m.a. formaður Tónskáldafélags Íslands 1988-1992 og sem forseti Bandalags íslenskra listamanna 1991-1998 átti hann frumkvæði að mörgum framfaramálum á sviði lista og menningar í lok tuttugustu aldar. Hjálmar skrifaði greinar í tímarit og blöð um bæði fræðileg efni og menningarpólitík og var virkur í baráttusamtökum fyrir náttúruvernd. Hjálmar H. Ragnarsson var fyrsti rektor Listaháskólinn og var í fararabroddi við uppbyggingu lista hér á landi undanfarna áratugi. Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson Stýrði Listaháskólanum í 15 ár Hjálmar var ráðinn fyrsti rektor Listaháskólans við stofnun skólans haustið 1998 og stýrði uppbyggingu skólans í 15 ár, allt til ársins 2013. Hjálmar hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu 1996 og heiðurskross Sambandslýðveldis Þýskalands, af 1. gráðu 2003. Hann fékk Grímuna fyrir bestu frumsömdu leikhústónlistina í tvígang, 2003 og 2018. Hjálmar var valinn heiðurslistamaður Kópavogs 2009, fyrsti heiðursdoktor Listaháskóla Íslands 2016 og hlaut heiðursmerki STEF´s 2025. Eftirlifandi eiginkona Hjálmars er Ása Richardsdóttir, liststjórnandi og hann lætur eftir sig þrjú uppkomin börn. Hjálmar H. Ragnarsson samdi fjölda tónverka sem hafa verið flutt hér á landi og erlendis. Hann var rektor Listaháskólans fyrstu 15 árin í sögu skólans, eða frá 1998-2013. mbl.is/Rax HJónin Ása Richardsdóttir og Hjálmar við sýningu Íslenska dansflokksins í Borgarleikhúsinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson Frá tónleikunum í Hörpu sl. miðvikudagskvöld þegar nokkur tónverka Hjálmars voru flutt sem hann samdi við leiksýningar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Varð orðlaus þegar ég sá þessar byssur“ Beint: Blaðamannaverðlaunin afhent Sigið í öskjunni í áratugi Líklegastur til að taka við skoska stórliðinu Búið að opna Holtavörðuheiði að nýju Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Hvers vegna þarf að breyta stjórnarskrá vegna ESB-aðildar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Holtavörðuheiði er lokuð Segir Pútín hjálpa Írönum „dálítið“ Holtavörðuheiði lokað vegna umferðaslyss Lentu í vandræðum uppi á jökli Mest lesið Í gær Í vikunni Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Quang Le fær ekki að opna bankareikning Flytur mál fyrir Hæstarétti Ríkisstjórnin ræðir neyðarbirgðir olíu Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Nýjast á mbl.is » „Varð orðlaus þegar ég sá þessar byssur“ Beint: Blaðamannaverðlaunin afhent Sigið í öskjunni í áratugi Líklegastur til að taka við skoska stórliðinu Búið að opna Holtavörðuheiði að nýju Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Hvers vegna þarf að breyta stjórnarskrá vegna ESB-aðildar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Lentu í vandræðum uppi á jökli Fólkinu hefur verið bjargað af jöklinum Mikil samlegðaráhrif vindorkuvera Mest lesið Í gær Í vikunni Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Quang Le fær ekki að opna bankareikning Flytur mál fyrir Hæstarétti Ríkisstjórnin ræðir neyðarbirgðir olíu Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn