Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld er látinn

Read Full Article →

Hjálmar H. Ragnarsson, tónskáld og fyrsti rektor Listaháskóla Íslands, er látinn. Hjálmar var meðal ástsælustu tónskálda þjóðarinnar og forystumaður í uppbyggingu lista á Íslandi í áratugi. Hjálmar fæddist á Ísafirði 23. september 1952, sonur hjónanna Sigríðar Jónsdóttur Ragnar og Ragnars H. Ragnar. Faðir hans var skólastjóri Tónlistarskólans á Ísafirði sem hýstur var að stórum hluta á heimili þeirra svo hann var alla tíð umkringdur tónlist. Eftirlifandi eiginkona Hjálmars er Ása Richardsdóttir liststjórnandi og hann lætur eftir sig þrjú uppkomin börn. Hann stundaði tónlistarnám á Ísafirði og í Reykjavík og hélt til frekara náms í Bandaríkjunum að loknu stúdentsprófi. Hjálmar lauk meistaraprófi í tónsmíðum og tónfræðum frá Cornell-háskólanum og stundaði nám í raf- og tölvutónlist í Hollandi. Hjálmar starfaði hér á landi sem tónskáld, söngstjóri og kennari og tók virkan þátt í félagsmálum listamanna. Hann var formaður Tónskáldafélags Íslands og forseti Bandalags íslenskra listamanna. Fjöldi tónverka liggur eftir Hjálmar og má þar finna sönglög og kórverk, tónsmíðar fyrir einleikshljóðfæri, kammerverk, raftónlist, hljómsveitarverk og óperur. Þá samdi Hjálmar tónlist við fjölda leiksýninga og við sjónvarpsmyndir. Hjálmar var fyrsti rektor Listaháskóla Íslands og þykir hafa markað spor sem eitt afkastamesta og dáðasta tónskáldið í íslenskum samtíma.

Share this article