Í Viðskiptablaði vikunnar er fjallað um vöxt í starfsemi Kviku banka í Bretlandi, þar á meðal hjá fasteignalánafyrirtækinu Ortus. Rekstur þess gekk erfiðlega fyrst um sinn eftir að Kvika gekk frá kaupum á meirihluta í félaginu árið 2022, en hefur vaxið hratt upp á síðkastið. Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, lýsti því í viðtali við Viðskiptablaðið í september 2023 að starfsemi Ortus hefði verið undir áætlun frá því að bankinn gekk frá kaupum á fasteignalánafyrirtækinu í febrúar 2022, ekki síst vegna erfiðra ytra aðstæðna. Stýrivextir Englandsbanka hækkuðu úr 0,5% í 5,25% á einu og hálfu ári, m.a. vegna áhrifa stríðsins í Úkraínu. Sjá einnig Starfsemin í Bretlandi undir áætlunum Ármann sagði að það hafi tekið tíma fyrir Ortus að hækka sína útlánavexti og því hafi vaxtamunur félagsins lækkað talsvert tímabundið. Jon Salisbury, framkvæmdastjóri Ortus, segist í viðtali í Viðskiptablaði vikunnar líta á þennan tíma sem aðlögunartímabil eftir að hafa áður veitt lán nær alfarið með föstum vöxtum, eins og tíðkaðist almennt á markaðnum. Í dag samanstendur lánabókin tæplega 90% af lánum með breytilegum vöxtum. „Lánabókin okkar var alltaf með stuttan meðaltíma. Við vorum meðvituð um að vextir gætu hækkað með tilheyrandi áhrifum á afkomuna og hvernig við þyrftum að bregðast við í slíkum aðstæðum. Á þessum tíma gat maður hins vegar ekki selt lánavörur með breytilegum vöxtum. Það breyttist þó eftir að flestir lánveitendur aðlöguðu framboðið sitt.“ Viðsnúningur hjá Ortus á stóran þátt í að afkoma Kviku í Bretlandi fór úr því að vera neikvæð um 262 milljónir króna fyrir skatta árið 2023 í að skila 2.260 milljóna hagnaði af reglubundinni starfsemi fyrir skatta í fyrra. Kvika rekur bætta afkomu bresku starfseminnar til stærri lánabókar og hærri vaxtamunar ásamt auknum eignum í stýringu og hagræðingaraðgerðum. Jon og Richard, framkvæmdastjóri Kviku í Bretlandi, segja Kviku banka eiga stóran þátt í vexti bresku starfseminnar á síðustu árum, m.a. þegar kemur að bættri fjármögnun. Richard segir að Ortus hafi verið vel fjármagnað í gegnum breskar lánastofnanir en innkoma Kviku sem móðurfélags hafi gefið félaginu ákveðinn sprengikraft (e. firepower). Þessi stuðningur Kviku banka ásamt tengslaneti og reynslu 30 starfsmanna Kviku í Bretlandi fari mjög vel saman. Jon bætir við að menningin sé svipuð innan Ortus og Kviku, sem hafi verið áskorandi og komið með nýjar vörur á fjármálamarkaðinn. Fréttin er hluti af lengri umfjöllun um Kviku í Bretlandi í Viðskiptablaði vikunnar . Þar er rætt ítarlega við framkvæmdastjóra Kviku í Bretlandi og framkvæmdastjóra Ortus um starfsemina og tækifærin á breska markaðnum.