Kvika banki gekk frá kaupum á meirihluta í breska fasteignalánafyrirtækinu Ortus Secured Finance árið 2022 og eignaðist félagið á síðasta ári. Heildarkaupverðið nam samtals 34,7 milljónum punda eða tæplega 6 milljörðum króna. Lánabók Ortus er að stærstum hluta byggð á fasteignartyggðum lánum á Bretlandseyjum þar sem félagið leggur áherslu á hefðbundnar íbúða- og atvinnueignir og forðast fasteignaþróunarverkefni og framkvæmdaáhættu. Félagið er auk þess í auknum mæli farið að sinna rekstrarlánum til fyrirtækja sem beinast að arðbærum fyrirtækjum þar sem lán eru byggð upp með lágum EBITDA-margföldurum. Sjá einnig Kvika að kaupa breskt félag Nálgun Ortus er í grunninn varfærin að sögn Jon Salisbury, framkvæmdastjóra Ortus, sem bendir á að félagið hefur aldrei tapað á nokkurri lánveitingu á 13 ára starfstíð sinni. „Við höfum báðir starfað á þessum markaði í yfir 25 ár og því upplifað mjög ólíkar markaðsaðstæður. Við höfum séð hvað það getur verið gaman að vera gíraður þegar vel gengur en að sama skapi höfum við séð hvaða afleiðingar mikil skuldsetning getur haft í för með sér. Þegar við hófum lánastarfsemina var regla A, B og C hjá okkur: Ekki tapa peningum,“ segir Richard Beenstock, framkvæmdastjóri Kviku í Bretlandi, og bætir við að það eigi enn við um Ortus í dag. Jon segir Ortus leggja mikla áherslu á að greina mögulegt tap vegna alvarlegra vanskila. Þótt erfitt sé að sjá fyrir hvaða útlán gætu endað í vanskilum sé auðveldara að greina hvað muni gerast ef aðstæður versna. Hann segir styrkleika Ortus m.a. felast í sterku tengslaneti og svigrúmi til að vinna náið með viðskiptavinum í slíkum aðstæðum. Mikið um milliliði á breska markaðnum Að sögn Jon einkennist breski lánamarkaðurinn mjög af milliliðum, sem þýðir að einstaklingar leita yfirleitt til lánamiðlara fremur en til endanlegs lánveitenda. Hann telur lánveitendur því hafa þrjá valkosti um hvar þeir vilja staðsetja sig á markaðnum. „Ein leið er að taka á sig mikla lánsáhættu og önnur er að bjóða mjög ódýra fjármögnun. Miðlarar elska lánveitendur sem eru tilbúnir að taka mikla áhættu þar sem viðskipti ganga þá mjög hratt fyrir sig,“ segir Jon. „Það sem við reynum að bjóða upp á er nýsköpun. Við bjóðum miðlurum því upp á aðlaðandi lánavörur sem þeir geta boðið viðskiptavinum sínum. Við erum þekkt fyrir áreiðanleika og skilvirkni, auk þess að geta þjónustað viðskiptavini um allt Bretland, þar á meðal á Norður-Írlandi, á meðan margir aðrir lánveitendur einblína á afmarkaðri markaði. Við höfum einnig þekkingu á fjölbreyttum eignaflokkum og getum því fundið lausnir fyrir margar tegundir fasteigna, til dæmis iðnaðarhúsnæði eða hjúkrunarheimili.“ Færa sig út í sambankalán Ortus hefur upp á síðkastið verið að færa sig út í sambankalán með breskum bönkum til stærri fyrirtækja. Jon segir að það opni tækifæri til að stækka starfsemina enn frekar og færa sig yfir í sjóðstreymislán til öflugra fyrirtækja. Hann leggur þó áherslu á að Ortus stígi varfærin skref á þessu sviði og geri ekki ráð fyrir að þetta verði stór hluti lánabókarinnar á næstunni. Richard bendir á að þetta séu öflug rekstrarfélög sem hafa verið með hóflega skuldsetningu. Fréttin er hluti af lengri umfjöllun um Kviku í Bretlandi í Viðskiptablaði vikunnar . Þar er rætt ítarlega við framkvæmdastjóra Kviku í Bretlandi og framkvæmdastjóra Ortus um starfsemina og tækifærin á breska markaðnum.