Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kvika í Bret­landi komin 90% áleiðis með há­leit mark­mið

Read Full Article →

Starfsemi Kviku banka í Bretlandi hefur vaxið hratt á undanförnum þremur árum og skilaði í fyrra um 2,2 milljörðum króna í hagnað fyrir skatta, þegar horft er fram hjá sérstakri gjaldfærslu á fyrsta ársfjórðungi vegna lúkningar á kaupum Kviku á Ortus. Til samanburðar var starfsemin í Bretlandi rekin með lítillegu tapi árið 2023 og 1,3 milljarða króna hagnaði fyrir skatta árið 2024. Sem hlutfall af rekstrarhagnaði og lánabók samstæðunnar vegur breska starfsemin um 20%. Richard Beenstock, framkvæmdastjóri Kviku í Bretlandi, segir að þrátt fyrir krefjandi markaðsaðstæður sé breska starfsemi Kviku komin um 90% áleiðis með metnaðarfull markmið þriggja ára vaxtaráætlunar sem félagið setti sér á fyrsta ársfjórðungi 2024. „Ég er ekki viss um að margir hafi átt von á því að við myndum ná þessum markmiðum,“ segir Richard, sem hefur stýrt Kviku í Bretlandi frá desember 2023. Mynd tekin úr fjárfestakynningu Kviku banka vegna uppgjörs fyrsta ársfjórðungs 2026. Breska félagið setti sér umrædd markmið á fyrsta ársfjórðungi 2024. Lánabókin tvöfaldast Starfsemi Kviku í Bretlandi skiptist í tvo hluta. Annars vegar er upprunaleg starfsemi Kviku í Bretlandi, sem hóf rekstur árið 2017 og sérhæfir sig í eignastýringu, fyrirtækjaráðgjöf og rekstri sérhæfðra sjóða. Heildareignir í stýringu og fjárfestingarstöður félagsins nema nú 18 milljörðum króna samanborið við 7 milljarða í byrjun árs 2024. Vaxtaráætlunin gerir ráð fyrir að þetta verði komið upp í 20 milljarða í byrjun næsta árs. Hins vegar er það fasteignalánafélagið Ortus Secured Finance sem Kvika eignaðist að fullu í fyrra eftir að hafa keypt meirihluta í félaginu árið 2022 og verið í hluthafahópi þess frá árinu 2018. Heildarkaupverðið nam samtals 34,7 milljónum punda eða tæplega 6 milljörðum króna. Með fyrrnefndri þriggja ára vaxtaráætlun var sett markmið um að lánabók félagsins myndi vaxa úr 36 milljörðum í 55 milljarða króna fram að fyrsta ársfjórðungi 2027. Í dag stendur lánabókin í ríflega 300 milljónum punda, eða um 48 milljörðum króna, sem þýðir að félagið hefur þegar náð 87% af markmiði sínu. Lánabókin hefur tvöfaldast frá árinu 2021. Fréttin er hluti af lengri umfjöllun um Kviku í Bretlandi í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Þar er rætt ítarlega við framkvæmdastjóra Kviku í Bretlandi og framkvæmdastjóra Ortus um starfsemina í Bretlandi og tækifærin á breska markaðnum.

Share this article