Heildareignir í stýringu og fjárfestingarstöður Kviku í Bretlandi hafa meira en tvöfaldast og farið úr 7 milljörðum í 18 milljarða króna frá byrjun árs 2024. Það má að stórum hluta rekja til nýs framtakssjóðs sem félagið setti á laggirnar, en áður hafði Kvika fyrst og fremst unnið að einstökum fjárfestingarverkefnum. Í samstarfi við Kviku eignastýringu setti félagið á fót og lauk 5 milljarða króna fjármögnun fyrir framtakssjóðinn Harpa Capital Partners II (HCPII) í ársbyrjun 2025 með þátttöku fimmtíu fjárfesta, að stærstum hluta íslenskra. Sjá einnig Nýr framtakssjóður Kviku fjárfestir bara í Bretlandi Sjóðurinn, sem fjárfestir einungis í Bretlandi, hefur fjárfest í fimm verkefnum á rúmu ári og að meðtöldum viðbótarfjárfestingum, sem sjóðfélögum hefur staðið til boða, hafa heildarfjárfestingar tengdar HCPII numið 65–70 milljónum punda, eða yfir 10 milljörðum króna. Richard Beenstock, framkvæmdastjóri Kviku í Bretlandi, sér mikil tækifæri til áframhaldandi vaxtar á þessu sviði. Hann segir að HCPII hafi náð markmiðum sínum um eignir í stýringu mun fyrr en gert var ráð fyrir. Í þeim viðskiptum sem sjóðurinn hefur komið að nam kaupverðið á bilinu 4-7-faldri EBITDA. Hann upplýsir um að í nýlegum fyrirtækjakaupum upp á 90 milljónir punda, sem sjóðurinn kom að, var margfaldarinn 5xEBITDA. Kvika vinnur nú að undirbúningi nýs framtakssjóðs sem horft er til að hefji starfsemi á seinni hluta ársins. Aðspurður segir Richard að stefnt sé að því að hann verði stærri en HCPII. „Óspennandi“ fyrirtækjakaup Richard huga mikið að áhættu til lækkunar (e. downside risk), m.a. með fjárfestingum í fyrirtækjum sem búa yfir seljanlegum eignum eða eru með sérstaklega öflugt sjóðstreymi. „Sumir myndu segja að við fjárfestum í óspennandi fyrirtækjum. Við höfum ekki verið að fjárfesta í flóknum tækni- eða lyfjafyrirtækjum. Fyrirtækin sem við fjárfestum í eru oftar en ekki að sækja fjármagn frá stofnanafjárfestum í fyrsta sinn. Þau geta notið góðs af reynslu og þekkingu sem við og okkar meðfjárfestar höfum upp á að bjóða, t.d. til að aðstoða við næstu skref í uppbyggingu rekstrarins. Þannig að við erum í grunninn að leita að öflugum samstarfsaðilum til að vinna með og þar kemur sterkt tengslanet okkar að góðum notum.“ Almennt leitast sjóðurinn við að styðja við þau stjórnendateymi sem fyrir eru hjá félögunum fremur en að ráðast í umfangsmiklar breytingar eða endurskipulagningu. Fréttin er hluti af lengri umfjöllun um Kviku í Bretlandi í Viðskiptablaði vikunnar . Þar er rætt ítarlega við framkvæmdastjóra Kviku í Bretlandi og framkvæmdastjóra Ortus um starfsemina og tækifærin á breska markaðnum.