Kvika banki hagnaðist um 1,8 milljarða króna af áframhaldandi starfsemi fyrir skatta á fyrsta ársfjórðungi, en til samanburðar var hagnaður samstæðunnar 701 milljón á þennan mælikvarða á sama tímabili í fyrra. Kvika birti uppgjör eftir lokun Kauphallarinnar í dag. Arðsemi efnislegs eigin fjár (RoTE) fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi nam 15,7% á fyrsta ársfjórðungi 2026, samanborið við 7,8% á fyrsta fjórðungi 2025. Hagnaður Kviku eftir skatta nam 1.374 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi, samanborið við 2.086 milljónir á fyrsta fjórðungi 2025. Munurinn skýrist af söluhagnaði af TM tryggingum í byrjun síðasta árs. Rekstrartekjur bankans námu 4,9 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi, samanborið við rúmlega 4,5 milljarða á sama tímabili í fyrra. Mestu munaði um að hreinar vaxtatekjur jukust um 349 milljónir eða 12% milli ára og námu tæplega 3,3 milljörðum króna á fjórðungnum. Vaxtamunur var 4,5%, samanborið við 4,4% á fyrsta fjórðungi 2025. Hreinar þóknanatekjur lækkuðu um 2,3% milli ára og námu 1.486 milljónum króna. Aðrar rekstrartekjur námu 135 milljónum námu á fjórðungnum, samanborið við 12 milljónir á sama tímabili í fyrra. Rekstrarkostnaður lækkaði um 76 milljónir króna frá fyrra ári eða 2,5% og nam 3 milljörðum króna. Heildareignir Kviku námu námu 360 milljörðum króna í lok mars. Eigið fé samstæðunnar var 67 milljarðar króna. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar (CAR) var 26,7%. Gætu skilað 40 milljörðum til hluthafa á 2 árum Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, segir að í kjölfar þess að hætt var við samrunaviðræður við Arion banka haldi bankinn nú ótrauður áfram á þeirri vegferð sem mörkuð var fyrir um tveimur árum síðan, sem byggist á umtalsverðum vexti. „Mikilvægt næsta skref í þeirri vegferð er að auka skilvirkni fjármagnsskipan bankans. Í apríl gáfum við út í fyrsta sinn svokölluð AT1 skuldabréf, sem teljast til viðbótar eiginfjárþáttar 1, fyrir fjárhæð sem nemur um 4 milljörðum króna. Útgáfan fór fram í Svíþjóð og fékk afar góðar viðtökur þar sem kjörin, 4,25% yfir millibankavöxtum, voru mun hagstæðari en gert hafði verið ráð fyrir.“ Sjá einnig Stjórn Kviku boðar 10 milljarða viðbótararðgreiðslu Hann segir andvirði þessarar útgáfu, ásamt mjög sterkri eiginfjárstöðu fyrir hana, gera stjórn bankans kleift að leggja til rúmlega 10 milljarða arðgreiðslu við hluthafafund sem boðaður hefur verið í byrjun júní. Auk þess gefi sterk eiginfjárstaða Kviku mögulegt að stefna að allt að 4 milljarða endurkaupum á árinu, án þess að dregið sé úr áætlunum um lánavöxt né markmiðum um mikinn fjárhagslegan styrkleika. „Ef þessi markmið ganga eftir mun Kvika hafa skilað rúmlega 40 milljörðum króna til hluthafa sinna á einungis tveimur árum, á sama tíma og mjög góður vöxtur hefur verið í starfsemi bankans. Þessi breyting á fjármagnsskipan bankans mun jafnframt að öðru óbreyttu hafa umtalsverð jákvæð áhrif á arðsemi eiginfjár til framtíðar.”