Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hlutabréf í Kviku hríðfalla í fyrstu viðskiptum

Read Full Article →

Hluta­bréfa­verð Kviku banka hefur fallið um 11% í fyrstu við­skiptum í morgun eftir að greint var frá því í gærkvöldi að sam­runa­viðræðum bankans og Arion banka hefði verið slitið. Hluta­bréfa­verð Arion banka hefur á sama tíma hækkað um hálft pró­sent. Líkt og Við­skipta­blaðið greindi frá í gærkvöldi var ákveðið að hætta sam­runa­viðræðum bankanna eftir fund með full­trúum Sam­keppnis­eftir­litsins þar sem ljóst var að eftir­litið myndi ekki heimila þá hag­ræðingu sem full­trúar Arion og Kviku sáu fyrir sér. Fram kom í til­kynningum bankanna til Kaup­hallarinnar að for­viðræðum Kviku banka og Arion banka við Sam­keppnis­eftir­litið vegna sam­runaá­forma félaganna væri lokið. Full­trúar bankanna funduðu í gær með full­trúum eftir­litsins sem kynntu af­stöðu sína að loknum for­viðræðum og í kjölfarið töldu stjórnir félaganna að ekki gæti orðið af sam­runa bankanna. Sam­kvæmt heimildum Við­skipta­blaðsins er það mat Sam­keppnis­eftir­litsins að Kvika skipti það miklu máli fyrir sam­keppni í einka­bankaþjónustu, eignastýringu og útlána­starf­semi að ekki væri for­svaran­legt að sam­runinn næði fram að ganga á óbreyttum for­sendum. Með ákvörðuninni hafa stjórnir bankanna fallið frá sam­runaá­formum sem fyrst var greint frá í til­kynningu til Kaup­hallarinnar 6. júlí 2025. Þar með er lokið einu stærsta sam­runa­máli sem verið hefur til um­fjöllunar á ís­lenskum fjár­mála­markaði undan­farna mánuði. Í yfir­lýsingu frá Bene­dikti Gísla­syni, banka­stjóra Arion banka, segir að sam­runa­viðræður bankanna hafi gengið vel og að báðir aðilar hafi séð mikil tækifæri til að auka skil­virkni í ís­lensku fjár­mála­kerfi við­skipta­vinum og hlut­höfum til góðs. Hann segir af­stöðu Sam­keppnis­eftir­litsins koma nokkuð á óvart og vera von­brigði. Ár­mann Þor­valds­son, for­stjóri Kviku, segir niður­stöðu for­viðræðnanna jafn­framt þýða að nú liggi endan­lega fyrir að ekki verði af sam­runa Kviku við stóru við­skipta­bankana. Hann segir Kviku halda ótrauða áfram og bendir á að eigin­fjár­staða bankans sé mjög sterk. Þá hyggst bankinn boða til hlut­hafa­fundar á næstunni þar sem stjórn bankans muni leggja til sér­staka arð­greiðslu til hlut­hafa. Sjá einnig SKE blæs samruna Arion og Kviku af

Share this article