Viðskipti | Morgunblaðið | 19.4.2026 | 13:48 Vonbrigði og kom á óvart Arion fær ekki Kviku. mbl.is/Eggert Jóhannesson Þóroddur Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Það kom Benedikt Gíslasyni, bankastjóra Arion banka, á óvart og voru honum vonbrigði að ekkert verði af samruna við Kviku. Eftir lokun markaða á miðvikudag var greint frá því í tilkynningu að bankarnir hefðu átt fund með Samkeppniseftirlitinu, SKE, þann dag þar sem SKE kynnti afstöðu sína að loknum forviðræðum við bankana. „Í ljósi þeirrar afstöðu Samkeppniseftirlitsins sem fram kom á fundinum telja stjórnir Kviku banka og Arion banka að ekki geti orðið af samruna félaganna. Stjórnir bankanna hafa því fallið frá samrunaáformum sem upplýst var um í tilkynningu til kauphallar þann 6. júlí 2025,“ sagði í tilkynningunni. „Í grunninn átti að fækka viðskiptabönkum á markaðinum úr fjórum í þrjá. Staða Kviku sem mikilvægs samkeppnisafls á markaðinum var metin þannig að þær mótvægisaðgerðir sem við lögðum til dygðu ekki til að mæta þeim áhrifum sem SKE taldi verða vegna stöðunnar,“ segir Benedikt. Hann segir að mikil og góð vinna hafi verið lögð í forviðræðurnar. „Við komum að þeim sjónarmiðum sem við töldum mikilvæg og SKE varði góðum tíma í málið og vann góða greiningarvinnu. Afstaðan er því fengin eftir ítarlega vinnu.“ Benedikt segir að bankarnir hefðu aldrei farið út í þetta nema að trúa því að út úr samruna kæmu öflugri samkeppnisaðili á markaði þar sem samlegðin af samruna myndi skila sér til viðskiptavina. Benedikt Gíslason. Veiki samkeppnina „En svo er hitt sjónarmiðið að hættan sé sú að það að fara úr fjórum bönkum í þrjá veiki samkeppni á markaðnum.“ Bankastjórinn segir starfsumhverfi bankanna flókið og regluverkið mikið. Einingarnar séu litlar í alþjóðlegu samhengi. „Við búum við töluvert háar eiginfjárkröfur. Skattar á þessa atvinnustarfsemi eru hærri en á aðrar greinar og sambærilega starfsemi erlendis. Það skilar sér í að arðsemi þessara fyrirtækja er lág í alþjóðlegum samanburði, hvort sem horft er á nafn- eða raunávöxtun. Starfsumhverfið birtist í rekstrarniðurstöðunni.“ Spurður að næstu skrefum segir Benedikt að bankinn haldi áfram að þróa sínar vörur og þjónustu og nýta nýjustu tækni til að gera hlutina betur og hraðar en aðrir. „Við höldum áfram að keppa á markaðnum. Þó að hann sé lítill og fáir spili á honum þá sýna mælingar að hreyfanleiki með vörur á fjármálamarkaði er meiri hér en í Evrópu. Við erum sem sagt með góða stafræna þjónustu sem styður við hreyfanleika og samkeppni. Fólk er meðvitað um þetta og leitar bestu kjara hverju sinni.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Pistlar » Sigurður Már Jónsson Magga Stína fór aldrei til Súdan Sigurður Már Jónsson Lagos: Strandbær með sögu Fleira áhugavert Vill snúa við „óheillaþróun“ á námsárangri barna Tvö gripin með rúm 30 kíló af amfetamíni Hormússund opið og tilbúið fyrir „fulla umferð“ Loka Hormússundi aftur Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Húðvörur velta milljörðum 4,6 milljarða samningur Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Runólfur ráðinn forstjóri Tekjur Dranga 40 milljarðar Miðgildi launa viðskipta- og hagfræðinga 1,3 milljónir Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Lækka verð á hundruðum vara Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Húðvörur velta milljörðum Samkeppniseftirlitið ógildir samruna 4,6 milljarða samningur Runólfur ráðinn forstjóri Tekjur Dranga 40 milljarðar Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Lækka verð á hundruðum vara Miðgildi launa viðskipta- og hagfræðinga 1,3 milljónir Þrír nýir eigendur að LEX Lækka verð á hundruðum vara Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Sumarbústaðir áfram vinsælir Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Runólfur ráðinn forstjóri Ekki verður af samruna Arion og Kviku Skora þekkt bókhaldskerfi á hólm Þrír nýir eigendur að LEX Pistlar » Sigurður Már Jónsson Magga Stína fór aldrei til Súdan Sigurður Már Jónsson Lagos: Strandbær með sögu Fleira áhugavert „Erum ennþá í pólitík,“ segir Kristrún Jón komst í gegn en Trump ekki Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur Skólalóðin drullusvað og óboðleg nemendum Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Húðvörur velta milljörðum 4,6 milljarða samningur Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Runólfur ráðinn forstjóri Tekjur Dranga 40 milljarðar Miðgildi launa viðskipta- og hagfræðinga 1,3 milljónir Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Lækka verð á hundruðum vara Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Húðvörur velta milljörðum Samkeppniseftirlitið ógildir samruna 4,6 milljarða samningur Runólfur ráðinn forstjóri Tekjur Dranga 40 milljarðar Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Lækka verð á hundruðum vara Miðgildi launa viðskipta- og hagfræðinga 1,3 milljónir Þrír nýir eigendur að LEX Lækka verð á hundruðum vara Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Sumarbústaðir áfram vinsælir Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Runólfur ráðinn forstjóri Ekki verður af samruna Arion og Kviku Skora þekkt bókhaldskerfi á hólm Þrír nýir eigendur að LEX