Innlent | Morgunblaðið | 17.4.2026 | 8:37 Vonbrigði með niðurstöðuna Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku. mbl.is/Eggert Jóhannesson Þóroddur Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku banka segir í samtali við Morgunblaðið það vera vonbrigði að ekki verði af samruna við Arion banka. Tilfinningarnar séu þó blendnar. Eftir lokun markaða á miðvikudag var greint frá því í tilkynningu að bankarnir hefðu átt fund með Samkeppniseftirlitinu, SKE, þann dag þar sem SKE kynnti afstöðu sína að loknum forviðræðum við bankana. „Í ljósi þeirrar afstöðu Samkeppniseftirlitsins sem fram kom á fundinum telja stjórnir Kviku banka og Arion banka að ekki geti orðið af samruna félaganna. Stjórnir bankanna hafa því fallið frá samrunaáformum sem upplýst var um í tilkynningu til kauphallar þann 6. júlí 2025,“ sagði í tilkynningunni. Ármann segir að ákveðið hafi verið að fara í forviðræður við SKE áður en formlegra samrunaferli væri hrint af stað. „Markmið forviðræðnanna sem tóku átta mánuði var að fá fram afstöðu SKE til samrunans og hvort upplegg okkar væri líklegt til að fá samþykki í formlegu ferli,“ segir Ármann. „Við vissum að í ljósi stærðar samrunans væri líklegt að koma þyrfti til ýmissa mótvægisaðgerða sem við vorum búin að leggja til, og setja mikla vinnu í að kynna fyrir SKE. En í þessu ferli, og endanlega á fundinum í gær [á miðvikudag], var ljóst miðað við afstöðu SKE að þetta myndi ekki fara í gegn eins og við lögðum til.“ Ármann segir að margir hlutir séu ræddir í svona viðræðum en undirliggjandi sé sú afstaða SKE að Kvika hafi samkeppnisleg áhrif á þessum markaði sem er umfram stærð félagsins. „Mótvægisaðgerðirnar sem við lögðum fram voru margvíslegar en SKE þóttu þær ekki vera ásættanlegar,“ segir Ármann og kveðst ekki geta farið nánar út í þær aðgerðir. „Við lögðum okkur alla fram og vildum ganga mjög langt til að tryggja að hagræðing af samrunanum myndi líka ganga til neytenda. Bæði við og Arion banki trúðum því, en því miður tókst ekki að sannfæra SKE. Í ljósi þess að afstaða SKE var mjög skýr þá töldum við þessu sjálfhætt. Það væri til lítils að fara í formlegt ferli ef þetta væri afstaðan.“ Ármann segir að bæði Kvika og Arion hafi haft ríka trú á mikilli samlegð sem hægt væri að nýta til hagsbóta bæði fyrir hluthafa og neyendur. „Það eru vonbrigði að ná ekki að klára þetta.“ Forstjórinn segir tilfinningarnar þó blendnar. „Þetta hefði þýtt að Kvika eins og hún er í dag myndi hverfa af markaði. Auðvitað eru smá tilfinningar sem tengjast því. Fyrst þegar Íslandsbanki nálgaðist okkur með samruna í huga, og síðar Arion, þá vorum við á okkar strategísku leið sem við kynntum árið 2024. Okkur gengur mjög vel og stefnum á að halda áfram á þessari vegferð í stórum dráttum. Við höfum síðan 2024 byggt upp mikinn fjárhagslegan styrkleika og getum komið umtalsverðum fjármunum til hluthafa eins og við höfum þegar kynnt. Við hyggjumst skila fimmán milljörðum til þeirra á þessu ári í formi arðgreiðslna og endurkaupa.“ Á sama tíma ætlar bankinn að vaxa mjög hratt að sögn Ármanns. Spurður að lokum um vaxtartækifæri bankans nefnir Ármann áform um stækkun lánabókarinnar. „Við settum okkur markmið um að tvöfalda lánabókina á árunum 2025 og 2027 og það er að ganga eftir. Stærri lánabók skilar sér í auknum vaxtatekjum.“ Ármann segir að lánin skili sér inn á mörgum sviðum, í fasteignalánum, íbúðalánum og bílalánum m.a. auk þess sem starfsemin í Bretlandi gangi vel. „Fókus okkar er á innri vöxt en auðvitað erum við alltaf á útkikkinu eftir öðrum tækifærum til að stækka með ytri vexti,“ segir Ármann að lokum. Ármann segir að SKE hafi ekki þótt mótvægisaðgerðirnar sem Kvika lagði fram ásættanlegar. mbl.is/Karítas Fáðu aðgang að þessari grein Til þess að lesa þessa frétt í fullri lengd þarftu að skrá þig inn. Nýskráning er ókeypis og án skuldbindingar. – það er ókeypis og án skuldbindingar. Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ræddi Liverpool og Arsenal rétt fyrir andlátið Vildi ekki hitta þingmennina Vonbrigði með niðurstöðuna Meirihluti landsmanna hlynntur leiguþaki Veislan að hefjast - spennandi viðureignir Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ísrael og Líbanon hafa samþykkt tíu daga vopnahlé Lágar álögur og vaxandi samfélag Bændur með harða gagnrýni Segir engin áform um að hætta með loftbrúna Mest lesið Í gær Í vikunni Auddi og Rakel opna dyrnar „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Stýrivextir sennilega hækkaðir í 8,25% á árinu Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Kennarasambandið braut jafnréttislög Sjálfstæðisflokkurinn leigir af Sjóvá Óvíst um virkni rofni samband Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Ræddi Liverpool og Arsenal rétt fyrir andlátið Vildi ekki hitta þingmennina Vonbrigði með niðurstöðuna Meirihluti landsmanna hlynntur leiguþaki Veislan að hefjast - spennandi viðureignir Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ísafjarðarflug tryggt til næstu fjögurra ára Bændur með harða gagnrýni Engin stemning fyrir flokkshroka Óábyrgt að fara að lofa einhverju Mest lesið Í gær Í vikunni Auddi og Rakel opna dyrnar „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Stýrivextir sennilega hækkaðir í 8,25% á árinu Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Kennarasambandið braut jafnréttislög Sjálfstæðisflokkurinn leigir af Sjóvá Óvíst um virkni rofni samband Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá