Forviðræðum Kviku banka og Arion banka við Samkeppniseftirlitið vegna samrunaáforma félaganna er lokið. Þetta kemur fram í tilkynningu Arion banka og Kviku banka til Kauphallarinnar. Í tilkynningunni segir að fulltrúar Kviku banka og Arion banka hafi í dag fundað með fulltrúum Samkeppniseftirlitsins sem kynntu afstöðu sína að loknum forviðræðum. Í ljósi þeirrar afstöðu Samkeppniseftirlitsins sem fram kom á fundinum telji stjórnir Kviku banka og Arion banka að ekki geti orðið af samruna félaganna. Stjórnir bankanna hafa því fallið frá samrunaáformum sem upplýst var um í tilkynningu til kauphallar þann 6. júlí 2025. Benedikt: Afstaða Samkeppniseftirlitsins vonbrigði Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka: „Samrunaviðræður Arion banka og Kviku banka gengu vel og sáu báðir aðilar mikil tækifæri til að auka skilvirkni í íslensku fjármálakerfi viðskiptavinum og hluthöfum til góðs. Vil ég þakka Kviku banka ánægjulegt samstarf síðustu mánuði. Mikil og vönduð vinna var lögð í forviðræður við Samkeppniseftirlitið og lögðu félögin fram margvíslegar lausnir til að stuðla að virkri og öflugri samkeppni á fjármálamarkaði. Afstaða Samkeppniseftirlitsins til samruna félaganna kemur því nokkuð á óvart og eru vonbrigði. Arion banki hefur á undanförnum árum verið í forystu á íslenskum fjármálamarkaði með fjölbreyttri og snjallri fjármálaþjónustu. Við munum óhikað halda áfram á þeirri braut og þróa og efla þjónustu okkar með þarfir viðskiptavina að leiðarljósi.“ Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku: „Mikil vinna hefur verið lögð í forviðræður bankanna við Samkeppniseftirlitið síðastliðna mánuði og vil ég þakka Arion banka fyrir uppbyggilegt og gott samstarf. Viðræður síðustu mánaða hafa verið gagnlegar að því leyti að nú liggur endanlega fyrir að ekki verður af samruna Kviku við stóru viðskiptabankana. Í ljósi þess hve samruni við Arion hefði getað skapað mikil verðmæti fyrir hluthafa og viðskiptavini töldum við eðlilegt að kanna hvort slíkur samruni gæti orðið að veruleika. Nú liggur niðurstaða forviðræðna fyrir og Kvika heldur ótrauð áfram á sinni spennandi vegferð. Bankinn hefur á að skipa öflugu starfsfólki, tryggum viðskiptavinum, fjölbreyttum traustum vörumerkjum og býr yfir miklum vaxtartækifærum bæði á Íslandi og í Bretlandi. Eins og fram kom í afkomukynningu okkar þann 11. febrúar síðastliðinn er eiginfjárstaða bankans gríðarsterk og til staðar er umtalsvert svigrúm til að skila verulegum fjármunum til hluthafa. Kvika gerir ráð fyrir að boða til hlutafafundar á næstunni þar sem stjórn bankans hyggst leggja til að samþykkt verði sérstök arðgreiðsla til hluthafa.“ Fréttin verður uppfærð.