Viðskipti | mbl | 29.5.2026 | 21:25 Segja gagnaver og einkaneyslu skýra hagvöxt Gagnaver og einkaneysla eru sögð skýra hagvöxt. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Landsframleiðsla jókst um 2,7% á milli ára að raunvirði á fyrsta fjórðungi ársins, samkvæmt fyrsta mati Hagstofunnar. Að því er segir í tilkynningu Landsbankans var hagvöxturinn að stórum hluta drifinn af jákvæðu framlagi utanríkisviðskipta. Þá skiluðu miklar fjárfestingar í gagnaverum á síðasta ári neikvæðu framlagi utanríkisviðskipta til hagvaxtar í fyrra vegna töluverðs innflutnings á tölvubúnaði. Viðsnúningurinn í framlagi utanríkisviðskipta skýrist því bæði af minni innflutningi á tölvubúnaði en einnig af því að gagnaverin eru farin að skila umtalsverðum vexti í þjónustuútflutningi. Samdráttur í fjárfestingu skýrist einnig að miklu leyti af minni fjárfestingu gagnavera á fjórðungnum borið saman við fyrsta fjórðung í fyrra. Aukning í kaupum heimilanna Einkaneysla jókst um 2,2% á fjórðungnum og er því um nokkuð hægari vöxt að ræða en á síðasta ári þegar einkaneysla jókst í heild um 4,3%. Aukning var í kaupum heimilanna á bifreiðum á fjórðungnum, þótt nýskráningar fólksbíla til einstaklinga hafi dregist saman um 14%. Þá var vöxtur í einkaneyslu vegna útgjalda Íslendinga í ferðalög erlendis. Þetta kemur á óvart þar sem utanlandsferðir Íslendinga drógust saman um 7% á milli ára á fjórðungnum, samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Þá gæti hluti af skýringunni verið að Íslendingar nýti sér erlenda netverslun í auknum mæli, en kortavelta Íslendinga í heild jókst í takt við vöxt einkaneyslunnar. Útflutningur í heild jókst um 1% Framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar var jákvætt um 5,3% sem er algjör viðsnúningur frá síðasta ári. Jákvætt framlag skýrist að stærstum hluta af samdrætti í vöruinnflutningi, en sem fyrr segir var töluvert minna flutt inn af tölvubúnaði í tengslum við gagnaver en á sama tíma í fyrra, sem skýrir samdráttinn að stórum hluta. Útflutningur í heild jókst um 1% þar sem vöruútflutningur dróst saman um tæp 4% en þjónustuútflutningur jókst um tæp 7%. Vöxtur þjónustuútflutnings skýrist að mestu af auknum umsvifum gagnavera hér á landi. Mikil fjárfesting í gagnaverum í fyrra er því að skila sér nokkuð hratt í vexti útflutnings. Samdrátt vöruútflutnings má meðal annars rekja til minni álframleiðslu vegna bilunar í álverinu á Grundartanga. Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Er Donald Trump að reka Ísland inn í ESB? Sigurður Már Jónsson Eignatengsl í sjávarútvegi, enn og aftur! Fleira áhugavert Búast má við töfum á landamærum Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Segja kostnaðinn við krónuna líklega meiri en ábatann Spyr hvort staða Landsbókasafns sæmi þjóðinni Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Sómi í nýjar hendur Óttast að atvinnulífið sé úr jafnvægi Skoða sameiningu tveggja sjóða Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Margt jákvætt í nýjum verðbólgutölum Finnbjörn: Enginn að taka á þessu með okkur Fjölda sagt upp hjá Rapyd: Nú rekið af gervigreind Selma nýr formaður SÍA Samkomulag í höfn og verkfalli aflýst Fjölda sagt upp hjá Rapyd: Nú rekið af gervigreind Lykilstjórnendur kaupa meirihluta í Air Atlanta Verðbólgan hjaðnar og mælist nú 5,1% Finnbjörn: Enginn að taka á þessu með okkur Aðalsteinn nýr sölustjóri hjá Eirvík Íslendingar draga saman seglin en ferðamenn ekki Beint: Stór nöfn í heimi hagfræðinnar í Hörpu Krefja bankana um ábyrgð og afturköllun vaxtahækkana Endurnýttur búnaður sækir á „Fjórða vaktin“ íþyngjandi fyrirtækjum Alvarleg staða á íbúðamarkaði Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Klíníkin bætir við sig sérhæfðri starfsemi Fjölda sagt upp hjá Rapyd: Nú rekið af gervigreind Vilja reisa nýtt hótel og leita að fjárfestum Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Aðeins einn aðili hefur ekki skilað lækkun til neytenda Lykilstjórnendur kaupa meirihluta í Air Atlanta „Fjórða vaktin“ íþyngjandi fyrirtækjum Krefja bankana um ábyrgð og afturköllun vaxtahækkana Pistlar » Sigurður Már Jónsson Er Donald Trump að reka Ísland inn í ESB? Sigurður Már Jónsson Eignatengsl í sjávarútvegi, enn og aftur! Fleira áhugavert Óttast að atvinnulífið sé úr jafnvægi Varar við umgjörð Segja kostnaðinn við krónuna líklega meiri en ábatann Vill selja Landsbankann vegna samgöngusáttmálans Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Sómi í nýjar hendur Óttast að atvinnulífið sé úr jafnvægi Skoða sameiningu tveggja sjóða Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Margt jákvætt í nýjum verðbólgutölum Finnbjörn: Enginn að taka á þessu með okkur Fjölda sagt upp hjá Rapyd: Nú rekið af gervigreind Selma nýr formaður SÍA Samkomulag í höfn og verkfalli aflýst Fjölda sagt upp hjá Rapyd: Nú rekið af gervigreind Lykilstjórnendur kaupa meirihluta í Air Atlanta Verðbólgan hjaðnar og mælist nú 5,1% Finnbjörn: Enginn að taka á þessu með okkur Aðalsteinn nýr sölustjóri hjá Eirvík Íslendingar draga saman seglin en ferðamenn ekki Beint: Stór nöfn í heimi hagfræðinnar í Hörpu Krefja bankana um ábyrgð og afturköllun vaxtahækkana Endurnýttur búnaður sækir á „Fjórða vaktin“ íþyngjandi fyrirtækjum Alvarleg staða á íbúðamarkaði Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Klíníkin bætir við sig sérhæfðri starfsemi Fjölda sagt upp hjá Rapyd: Nú rekið af gervigreind Vilja reisa nýtt hótel og leita að fjárfestum Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Aðeins einn aðili hefur ekki skilað lækkun til neytenda Lykilstjórnendur kaupa meirihluta í Air Atlanta „Fjórða vaktin“ íþyngjandi fyrirtækjum Krefja bankana um ábyrgð og afturköllun vaxtahækkana Loka