Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Elín: „Fer með gleði og reynslu í reynslubankann úr keppninni“

Read Full Article →

Elín Elmarsdóttir Van Pelt sagði færið í seinni ferðinni mun erfiðara en í þeirri fyrri. „Mér fannst seinni ferðin töluvert erfiðari. Ég byrjaði með smá mistökum út úr startinu, krossaði held ég aftar á endann á skíðunum en ég reyndi strax að koma hausnum í lag og hugsaði „klárum þetta bara.“ Ég átti góða kafla inn á milli fannst mér en færið og brautin fannst mér meira krefjandi en í fyrri ferðinni. Færið hérna neðst í sólinni, þar sem sólin er búin að skína á bakkann í allan dag. Það var aðeins mýkra, ég fann aðeins meira af grafningnum. En annars yfir höfuð ég er ég ánægð með daginn.“ „Ég fer með gleði og reynslu í reynslubankann úr keppninni. Mér fannst þetta alveg geggjað og það var geggjuð stemning. Þetta var geggjað í góðum bakka með góðum snjó. Alveg frábært,“ bætti hún við.

Share this article