„Þetta var bras alveg frá fyrsta porti,“ sagði Elín Elmarsdóttir Van Pelt eftir ferð sína í svigi á Vetrarólympíuleikunum. Hún missti af hliði snemma og féll úr leik. „Ég var á hælunum og sein. Það eru svona hraðaskiptikaflar og ég náði bara ekki alveg að negla á það. Svo kem ég inn í þessa nál, sem er skökk, og er bara á hælunum og sein og næ ekki næsta hliði.“ „Þetta eru erfiðar aðstæður, alveg erfiður snjór fannst mér og ef þú hittir ekki í sporið þá er þetta mjög erfitt,“ sagði Elín og viðurkennir að niðurstaðan hafi verið vonbrigði. Elín endaði í 43. sæti í stórsviginu og þrátt fyrir niðurstöðu dagsins var hún ánægð með leikana: „Þetta var bara besta upplifun í heimi. Ég er svo þakklát fyrir þetta tækifæri, þakklát fyrir teymið sem er hérna og Sonju. Þetta var alveg geðveikt.“