Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Ég trúði því aldrei að ég gæti komist alla leið hingað“

Read Full Article →

Elín bjó í Þýskalandi en flutti heim og fór að æfa hjá skíðadeild Víkings átta ára gömul. Hún segir að það hafi vissulega verið áskorun að æfa skíði, verandi Reykvíkingur. „Já, það er náttúrulega óútreiknanlegt veðrið á Íslandi. Maður gerði bara sitt besta. Í menntaskóla var ég í skíðaliði Reykjavíkur og svo kom ég hingað til Ítalíu og var í alþjóðlegu stelpuliði, klukkutíma frá Cortina.“ Og það segir Elín hafa gjörbreytt öllu fyrir sig til þess að ná góðum æfingum. Elín er samhliða skíðaæfingum í námi við við Háskóla Íslands í verkfræðilegri eðlisfræði. Hún viðurkennir að það geti verið brösótt að samhæfa það við æfingar í öðru landi en gott skipulag hjálpi til. „Ég trúði því aldrei að ég gæti komist alla leið hingað. Þetta er búinn að vera draumur minn síðan ég var barn.“

Share this article