Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Frostið setur golfvelli á óþægilegan stað

Read Full Article →

„Við erum á óþægilegum stað, akkúrat þessa dagana,“ sagði Bjarni Þór Hannesson, yfirvallastjóri Golfklúbbs Mosfellsbæjar, í Morgunútvarpinu á Rás 2. Hlýindin og snjóleysið á höfuðborgarsvæðinu og víðar hafa orðið til þess að frostið sem við upplifum núna gæti haft slæm áhrif á golfvelli. Bjarni Þór fór yfir stöðuna sem er í stuttu máli sú að mildur vetur getur orðið til þess að grasið þoli kuldann ekki nógu vel, þegar hann loksins kemur. „Við erum á stað þar sem nokkrar grastegundir gætu straujast út,“ sagði hann. Hlustaðu á fróðlegt viðtal við Bjarna Þór í spilaranum hér fyrir ofan. „Ef það væri snjór núna væri ég rólegur. Snjórinn er vörnin. Það vantar bara smá — þá myndast nett eingangrun,“ sagði hann. Morgunútvarpið er á Rás 2 millil klukkan 7 og 9 alla virka morgna.

Share this article