Einar Braga, sjö ára, langaði að vita hvenær íþróttagreinin golf varð til. Hann sendi spurninguna sína til þáttarins Hvað viltu vita? á Rás 1. Það eru nýir þættir þar sem krakkar spyrja spurninga um allt milli himins og jarðar og sérfræðingar svara. Hvenær byrjaði fólk eiginlega að spila golf? Stefán Pálsson sagnfræðingur svaraði spurningunni. Hann segir að leikir sem líkjast golfi hafi verið spilaðir víða um heim og á mörgum tímum í sögunni. Sagnaritarar fyrri tíma höfðu sjaldnast áhuga á að skrifa um eitthvað hversdaglegt eins og leiki og íþróttir. „En við vitum samt að fyrir meira en átta hundruð árum, um árið 1200, þá skemmtu Hollendir sér við leik sem nefndur var kolf og gekk út á að slá bolta með kylfu í mark, til dæmis hitta stein eða trjábol af löngu færi, með sem fæstum höggum. Skotar virðast snemma hafa tileinkað sér þennan hollenska leik,“ segir Stefán í svari sínu. Langar þig að vita meira? Hægt er að hlusta á allt svarið með því að smella á þáttinn hér fyrir neðan. „Alls konar boltaleikir virðast hafa fylgt mannkyninu frá örófi alda. Stundum þá er boltanum kastað eða sparkað og stundum sleginn með priki eða kylfu,“ segir Stefán Pálsson í nýjum útvarpsþáttum fyrir krakka á öllum aldri. Er eitthvað sem þig langar til að vita? Taktu upp spurninguna þína, mundu eftir að segja okkur nafnið þitt og aldurinn (þarf ekki að vera fullt nafn), og sendu í tölvupósti á hvadviltuvita@ruv.is.