Innlent | Morgunblaðið | 25.7.2026 | 23:00 Þjóðarleikvangur lýðheilsunnar Klúbbar og golfvellir eru því ekki bara íþróttaaðstaða heldur mikilvægir samfélagslegir innviðir sem efla félagsauð, þátttöku og lífsgæði fólks, segir Hulda Bjarnadóttir – hér á golfvellinum á Korpúlfsstöðum. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Golf er þjóðaríþrótt Íslendinga og þrátt fyrir þráláta rigningu að undanförnu hefur fólk flykkst á vellina til að eltast við hvítu kúlurnar. Hver stund á golfvöllunum er bókuð og iðkendum fjölgar stöðugt. Um 30.000 Íslendingar, eða um 8% þjóðarinnar, eru í golfklúbbum og allt að 60 þúsund manns stunda golf með einhverjum hætti. Þessar tölur eru með því hæsta í heimi og raunar er golfíþróttin í vexti um veröld alla. Frá 2019 hefur iðkendum í golfi fjölgað um 65% og bara árið 2025 var fjölgunin 11,5 % eða 3.000 nýir kylfingar. „Stóru skilaboðin sem í þessum tölum felast eru að golf er miklu meira en íþrótt. Á Íslandi er golf samfélagsleg auðlind sem skapar mælanlegt virði fyrir samfélagið með því að bæta líkamlega og andlega heilsu. Þetta er íþrótt sem styrkir samfélagstengsl, styður við virka öldrun og bætir aðgengi að grænum útivistarsvæðum,“ segir Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands, og heldur áfram: „Gögn sýna að hver króna sem fjárfest er í golfi skilar um tveimur krónum til baka í samfélagslegu virði. Sá ávinningur nær langt út fyrir hóp kylfinga. Með því að mæla þessi áhrif, eins og gert hefur verið, getum við sýnt fram á að golf er ekki einungis tómstund eða afþreying, heldur mikilvægur þáttur í lýðheilsu, vellíðan, sjálfbærni og lífsgæðum.“ Golfiðkun á höfuðborgarsvæðinu er mikil svo og á Suðurlandi. Þar eru klúbbarnir með 5.000 félagsmenn um 16 talsins og 13,8% íbúa stunda íþróttina. Þar bætist svo við að margir sumargestir á svæðinu, svo sem sumarbústaðafólk, eru í þessum klúbbum. Það er ánægjulegt, segir Hulda, að aðgengi að golfvöllum sé svo gott að íþróttin verði hluti af sumarfríi aðkomufólks á svæðinu. Hún tiltekur einnig metnað sem lagður er í uppbyggingu golfvalla. Á Suðurlandi sé til dæmis Svarfhólsvöllur við Selfoss, glæsilegur 14 holu völlur við bakka Ölfusár sem verði með 18 holum á komandi árum. Græn útivist Aldurshópurinn sem spilar flesta hringi að meðaltali yfir golftímabilið, frá vori til hausts, er 61-70 ára. Einstaklingar á því aldursbili leika 31,7 hringi á ári og þau sem eru eldri en sjötug spila litlu minna. Þetta er vel, segir Hulda og vekur í þessu sambandi athygli á að fjölmargar rannsóknir sýna að golf getur haft jákvæð áhrif á marga þætti heilsu, þar á meðal hjarta- og æðakerfi, efnaskipti, stoðkerfi og andlega líðan. Golfvellir landsins hafa verið fjölsóttir í sumar þrátt fyrir votviðri, enda er ástæðulaust að láta neitt stoppa sig með regnhlífar klárar. mbl.is/Kristinn Magnússon „Ég hef lengi sagt að golf sé einn stór þjóðarleikvangur lýðheilsunnar, þótt ekki sé nema vegna þess að golfvellirnir eru græn fjölnota útivistarsvæði,“ segir Hulda. „Golf sker sig úr sem íþrótt þar sem þátttaka eykst með hækkandi aldri og einn golfhringur á viku uppfyllir markmið um hreyfingu. Það er sérlega mikilvæg staðreynd með tilliti til öldrunar þjóðarinnar. Klúbbarnir eru því ekki bara íþróttaaðstaða heldur mikilvægir samfélagslegir innviðir sem efla félagsauð, þátttöku og lífsgæði. Auk þess að skapa aðgengi að hreyfingu og útiveru eru þeir vettvangur fyrir fjölbreytt félagsstarf, sjálfboðaliðastarf og samveru fólks á öllum aldri.“ Hagsporið er stórt Hulda víkur einnig að nýlegri greiningu KPMG á umfangi og áhrifum golfsins á Íslandi. Sú sýnir að beint hagspor þess árið 2024 var 11,7 milljarðar kr. „Þessar tölur um áhrif endurspegla þó aðeins hluta af heildarvirði golfíþróttarinnar. Stór hluti er utan hefðbundinna hagmælinga – sérstaklega í formi jákvæðra áhrifa á lýðheilsu, reglulegrar hreyfingar, útivistar og aukinnar vellíðunar iðkenda.“ Í keppnishluta golfsins er mikið að gerast. Nú eru landsliðin nýkomin heim af Evrópumótunum en fram undan eru hápunktar sumarsins, svo sem Íslandsmót golfklúbba þar sem lið klúbba landsins keppa sín á milli. Þá stendur fyrir dyrum Íslandsmótið sem verður á Korpunni í Reykjavík 6.-9. ágúst. „Mikið er lagt upp úr því að kylfingar fái eins góða upplifun og hægt er. Einnig þarf að huga að því að áhorfendum verði boðið upp á góða aðstöðu í fallegu umhverfi. Þau sem starfa hjá Golfklúbbi Reykjavíkur og Golfsambandi Íslands standa að framkvæmd mótsins og ég veit að vel tekst til hjá reynslumiklu fólki. Sjálf tek ég sportið alla leið. Fer oft út að spila eftir vinnu og um helgar á völlunum hér við höfuðborgarsvæðið og í nærumhverfi. Einnig er nú planið að fara vestur á firði að taka þátt í móti þar og svo eru fundir víða um land. Þetta eru ferðalög sem þarf ekkert að pína mig í; fátt er skemmtilegra en að hitta forsvarsfólk golfhreyfingarinnar og svo fara út á völl og taka nokkur högg,“ segir Hulda Bjarnadóttir að síðustu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Þjóðarleikvangur lýðheilsunnar Veiðin í Hítará og Straumu tvöfaldast Safna fé á OnlyFans Vansvefta forsætisráðherra vekur ugg Bandarískir embættismenn fá ekki vegabréfsáritun Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Dýr þétting skýri hæga sölu íbúða „Það er bara algjört hrun“ Áttu að fá 2,5 milljónir á mann fyrir verkið Mest lesið Í gær Í vikunni Manni kastað fram af svölum Þjóðarrétturinn kostar nú 1.370 krónur „Það er bara algjört hrun“ Lögregla og björgunarsveit í viðbragðsstöðu Feðgar greindust báðir með hvítblæði Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Gular viðvaranir vegna hvassviðris Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Þyrlan kölluð út vegna bráðaveikinda Forsendur fyrir refaveiðum brostnar Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Átti bágt með að trúa eigin augum Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Mistök Vísis og þrettán daga þögn Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Nýjast á mbl.is » Þjóðarleikvangur lýðheilsunnar Veiðin í Hítará og Straumu tvöfaldast Safna fé á OnlyFans Vansvefta forsætisráðherra vekur ugg Bandarískir embættismenn fá ekki vegabréfsáritun Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Er vandinn víðtækari en lestur á Laxness? Þegar Ísland sótti ekki um Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Manni kastað fram af svölum Þjóðarrétturinn kostar nú 1.370 krónur „Það er bara algjört hrun“ Lögregla og björgunarsveit í viðbragðsstöðu Feðgar greindust báðir með hvítblæði Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Gular viðvaranir vegna hvassviðris Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Þyrlan kölluð út vegna bráðaveikinda Forsendur fyrir refaveiðum brostnar Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Átti bágt með að trúa eigin augum Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Mistök Vísis og þrettán daga þögn Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Manneskjunni bjargað úr Ölfusá