Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Bjartsýnin eykst hjá vallarstjórum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 2.5.2026 | 22:00 Bjartsýnin eykst hjá vallarstjórum Grafarholtsvöllur Golfklúbbs Reykjavíkur tekur hröðum framförum þetta vorið. mbl.is/Karítas Kristján Jónsson [email protected] Setja bókamerki Golfvellirnir á Íslandi virðast víðast hvar koma ágætlega undan vetri en samkvæmt viðmælendum blaðsins eru þeir þó um tveimur vikum lengur að taka við sér en fyrir ári ef miðað er við stöðuna í apríl. Veturinn var á heildina litið með rólegra móti en eftir nokkuð þægilegan vetur, hvað veðrið snertir, þá kom vetrarveður í mars sem kom illa við golfvellina. Birkir Þór Karlsson, vallarstjóri í Leirunni hjá Golfklúbbi Suðurnesja, segir að þar hafi menn verið orðnir afar bjartsýnir í febrúar. Völlurinn er yfirleitt einn þeirra fyrstu sem opnast fyrir umferð (er þá ekki átt við vetrarútgáfu þar sem leikið er inn á vetrarflatir). Í þetta skiptið var opnað í Leirunni 23. apríl. „Hjá okkur leit þetta vel út í lok febrúar og þá var allt orðið iðagrænt á vellinum. Við vorum að gæla við hvort hægt yrði að opna völlinn um miðjan mars og vorum rosalega bjartsýnir. En þá kom skellur í mars og sá mánuður var erfiður,“ segir Birkir en grasið hafði sem sagt tekið vel við sér en fékk sjokk í mars. „Grasið datt vel niður en ekki þannig að við höfum lent í kali eða skemmdum. Grasið missti lit en ekkert alvarlegt. Alla vega ekki hjá okkur en frostið fer hratt úr hjá okkur í Leirunni. Eins og staðan er núna myndi ég segja að við værum í mjög góðum málum. Maður hugsar mest út í flatirnar og þær eru grænar og þéttar.“ Sláttur er hafinn Hjá Keili í Hafnarfirði hófst sláttur síðasta miðvikudag samkvæmt því sem klúbburinn setti á samfélagsmiðla og hjá Golfklúbbi Reykjavíkur hafa flatirnar einnig verið slegnar. „Við erum byrjaðir að slá flatir og förum bráðum að slá teiga,“ segir Styrmir Guðmundsson, forstöðumaður golfvalla- og eignasviðs hjá GR. Hann segir að þegar staðan var metin í síðustu viku hafi verið horft til þess að mögulegt væri að opna vellina hjá GR helgina 23. maí. Ástandið batni nú hratt og ef til vill væri hægt að flýta opnuninni en of snemmt sé að fullyrða nokkuð um það. „Það er bara rétt farið að vora eftir vetrarveður í mars og þar á undan hafði verið þurrt og kalt frost. Veturinn kom ansi seint og fast á okkur. Ef þú hefðir hringt í mig í síðustu viku hefði ég ekki verið voðalega bjartsýnn en staðan hefur lagast ótrúlega mikið á síðustu dögum. Nú er ég orðinn vongóður,“ segir Styrmir. Fjölmennu klúbbarnir á höfuðborgarsvæðinu þurfa að fara varlega þegar þeir taka ákvörðun um að opna vellina eins og kylfingar þekkja. Um leið og þeir eru opnaðir er stöðugur straumur frá morgni og fram á kvöld. Vellirnir þurfa því að vera komnir í nógu gott stand til að þola slíkt álag. Ef ekki getur orðið mikið tjón. Ein af 18 brautum Jaðarsvallar var vökvuð í vikunni. Ljósmynd/GA Eftirvænting á Akureyri Á Akureyri tekur Steindór Kr. Ragnarsson í svipaðan streng. „Miðað við árið í fyrra erum við svolítið á eftir en með hækkandi sól og hita eru hlutirnir fljótir að gerast,“ segir Steindór sem hefur staðið við stjórnvölinn hjá Golfklúbbi Akureyrar og stendur þar enn eins og segir í laginu en hann er framkvæmda- og vallarstjóri. Að sögn Steindórs er stefnan sett á að geta opnað Jaðarsvöll í kringum 15. maí og það þýði lítið annað fyrir Akureyringa en að vera brattir og bjartsýnir. Í fyrra hafi völlurinn verið opnaður 12. maí. „Eitt er að opna vellina en annað hvað boðið er upp á. Í hvernig standi eru vellirnir þegar kylfingar geta byrjað að spila? Í fyrra var völlurinn til að mynda orðinn mjög flottur þegar við opnuðum. Þetta lítur þokkalega út þótt maður vilji alltaf sjá völlinn vera kominn lengra,“ segir Steindór en hjá GA hefur orðið 29% fjölgun í klúbbnum á síðustu fimm árum og er meðlimafjöldinn nú um 1.100. Grænar flatir í Borgarnesi Bjarki Pétursson, framkvæmdastjóri hjá Golfklúbbi Borgarness, er ánægður með hvernig Hamarsvöllur kemur undan vetri. „Við erum mjög kátir yfir því hvernig flatirnar hafa tekið við sér og völlurinn virðist koma mjög vel undan vetri hjá okkur. Þá horfi ég sérstaklega á flatirnar sem eru orðnar grænar en sumar brautirnar eru ennþá gulleitar,“ segir Bjarki og það gæti verið mjög stutt í að Borgnesingar geti spilað völlinn. „Við höfum jafnvel gælt við að opna fyrir meðlimi sunnudaginn 3. maí en ef af því yrði væri það eingöngu fyrir klúbbmeðlimi. Við munum hinkra með að opna fyrir almenning en það er einnig út af framkvæmdum á svæðinu. Við höfum horf til þess að mögulega væri hægt að opna fyrir almenning í kringum 10. maí en það hefur ekki verið ákveðið. Síðustu tvær til þrjár vikur hafa verið meiriháttar hjá okkur í Borgarnesi og það hefur hjálpað mikið til eftir dapran marsmánuð,“ segir Bjarki en móttakan fyrir golfvöllinn verður í öðru húsnæði í sumar hjá æfingasvæðinu en hefur verið á hótelinu í mörg ár. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Prófa vegmerkingar gegn vélhjólaslysum Bjartsýnin eykst hjá vallarstjórum María, Þorgerður og Ingileif í stuði í búbbluboði Verður að dæma víti þegar það er víti Þetta var sturlað Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skaut föstum skotum að Kópavogi í ávarpi sínu Stjórnmálamenn vildu Spaugstofuna út 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Mest lesið Í gær Í vikunni Eins konar æði gripið Íslendinga Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi „Heiðarlegt vorhret“ á leiðinni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks „Heyrðu, er þetta æxlið mitt?“ Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Vasaþjófarnir snúnir aftur Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki Tvö ný útibú frá Góða hirðinum „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Herjólfur III verður klár í næstu viku Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Eins konar æði gripið Íslendinga Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Prófa vegmerkingar gegn vélhjólaslysum Bjartsýnin eykst hjá vallarstjórum María, Þorgerður og Ingileif í stuði í búbbluboði Verður að dæma víti þegar það er víti Þetta var sturlað Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bjartsýnin eykst hjá vallarstjórum Akranes: Kappræður oddvita Jón Gnarr sendi RÚV ekki reikning 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Mest lesið Í gær Í vikunni Eins konar æði gripið Íslendinga Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi „Heiðarlegt vorhret“ á leiðinni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks „Heyrðu, er þetta æxlið mitt?“ Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Vasaþjófarnir snúnir aftur Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki Tvö ný útibú frá Góða hirðinum „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Herjólfur III verður klár í næstu viku Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Eins konar æði gripið Íslendinga Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás

Share this article