Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sina brennd á golfvelli

Read Full Article →

Sinubruni á Hvaleyri í Hafnarfirði hefur vakið athygli margra í dag og hafa ófáar ábendingar borist fréttastofu í hádeginu og síðdegis. Ekki mun þó vera hætta á ferðum. Hjá Golfklúbbnum Keili fengust þær upplýsingar að verið væri að brenna sinu á afmörkuðum svæðum innan lóðar golfvallarins, svæði sem ekki væri hægt að slá á sumrin. Þetta mun vera gert í samráði við slökkvilið og Neyðarlínu og verkinu hagað þannig að engin hætta sé á því að eldurinn breiðist út. Reykur frá sinu.RÚV / Ragnar Visage

Share this article