Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sumar undanþágur tímabundnar en aðrar varanlegar

Read Full Article →

Innlent | mbl | 25.4.2026 | 17:45 Sumar undanþágur tímabundnar en aðrar varanlegar Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar. mbl.is/Karítas Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Aðild geti styrkt öryggi Íslands í víðum skilningi Nálgast beri verkefnið af virðingu og ábyrgð Kadis sýnir á spilin hjá Evrópusambandinu » Fleiri tengdar fréttir Evrópusambandið Minntist ekki á varanlegar undanþágur Fagna tímamótasigri Þúsundum meinaður aðgangur að ríkjum ESB Leggur til tímabundna frestun vegna Íransstríðsins Ragnar Þór telur skynsamlegt að sjá hvað er í boði » Fleiri tengdar fréttir Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segist telja að Ísland myndi gera kröfu í aðildarviðræðum um tímabundnar undanþágur frá regluverki Evrópusambandsins á ákveðnum sviðum en kröfu um varanlegar undanþágur á öðrum. Pawel er formaður utanríkismálanefndar Alþingis en Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sat fyrir svörum á opnum fundi nefndarinnar í gær og ýjaði að því Evrópurétturinn í heild sinni væri meðal þess sem yrði rætt um í mögulegum aðildarviðræðum. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er meðal þeirra sem gagnrýnt hafa málflutning utanríkisráðherra. Frétt af mbl.is „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Ekki eigi að leggja áherslu á forgangsréttinn Pawel, sem hefur lengi verið hlynntur aðild Íslands að Evrópusambandinu, viðurkennir að meginregla Evrópusambandsins sé einsleitni í löggjöf aðildarríkja sinna. Hann telur því að Ísland eigi að leggja áherslu á ákveðna málaflokka í aðildarviðræðum sínum og nefnir sérstaklega sjávarútvegs- landbúnaðar- og orkumál í því samhengi. „Útgangspunkturinn í okkar samtali við Evrópusambandið á ekki að vera að víkja forgangsrétti Evrópuréttar til hliðar,“ segir Pawel í samtali við mbl.is. Frétt af mbl.is „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Tónninn í Brussel annar en áður Er slitnaði upp úr viðræðum Íslands við Evrópusambandið árið 2012 höfðu kaflar um meðal annars landbúnað og sjávarútveg ekki verið opnaðir, enda lá ljóst fyrir að niðurstaðan yrði Íslendingum ekki hagfelld. Pawel telur að breyting gæti orðið á því í þeim viðræðum sem gætu hafist í haust. „Þau samtöl sem okkar ráðamenn hafa átt við Evrópusambandið og miðað við þær yfirlýsingar sem komið hafa á síðastliðnum mánuðum og vikum tel ég að full ástæða sé til að halda að þetta sé ferðarinnar virði. Við erum með yfirlýsingu frá meðal annars sjávarútvegsstjóra og stækkunarstjóra. Ég held það sé mjög erfitt að halda því fram að það sé ekki annar tónn en var í aðdraganda síðustu viðræðna.“ Pawel vill halda sjálfstæði Íslands í ákvörðunum um úthlutun kvóta á Íslandsmiðum. Morgunblaðið/ÞÖK Pawel telur að um margt sé að semja við Evrópusambandið og undanþágur gætu verið í boði, jafnt tímabundnar sem varanlegar. „Ég ímynda mér hvort tveggja. Ég ímynda mér að við myndum sækjast eftir tímabundnum undanþágum á einhverjum sviðum, þar sem skynsamlegt væri að gefa okkar löggjöf tíma til aðlögunar. Okkar markmið og krafa þegar kemur að ákveðnum hlutum, eins og þegar kemur að því hvernig kvóta er úthlutað á Íslandsmiðum, tel ég ekki eiga að vera að sækjast eftir aðlögun til 3,5 eða 7 ára heldur einfaldlega varanlegri undanþágu.“ Frétt af mbl.is Veigamikið framsal ríkisvalds Vill ekki ræða afstöðu annarra ríkja Ein af forsendum þess að Ísland geti gengið inn í Evrópusambandið er sú að öll 27 ríki sambandsins samþykki aðildarsamning Íslands. Það vekur upp spurningar um hvort ríki sem treysta mjög á sjávarútveg myndu samþykkja aðildarsamning Íslands sem fæli í sér veigamiklar varanlegar undanþágur. „Okkar kröfur og samningsmarkmið verða eitthvað ákveðið. Miðað við þau samtöl sem ég hef átt tel ég ekki óraunhæft að finna einhverja lausn. Ég vil ekki fabúlera um það á þessari stundu hver afstaða annarra aðila kunni að vera. Ég held það þjóni ekki hagsmunum Íslands að gefa út slíkar yfirlýsingar. Ef ég myndi telja það vera borin von að finna sérlausn í þessum málaflokkum sem gagnist Íslandi myndi ég ekki vilja halda af stað í þessa vegferð, en ég tel svo ekki vera,“ segir formaður utanríkismálanefndar. Dregið hefur úr því í seinni tíð að varanlegar undanþágur séu veittar frá regluverkinu, þó það hafi tíðkast í fyrri tíð. Pawel segir ástæðu þess vera að flest þau lönd sem gengið hafi í sambandið á undanförnum árum séu fyrrum ríki kommúnisma og harðstjórnar, og kröfur þeirra hafi því verið annars eðlis. Hann bendir þó á að sérstakur viðauki hafi verið gerður við aðildarsamning Möltu árið 2004 þar sem sérlausn sé að finna í sjávarútvegi sem hafi haldið alla tíð síðan. Tengdar fréttir Ísland og ESB „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Aðild geti styrkt öryggi Íslands í víðum skilningi Nálgast beri verkefnið af virðingu og ábyrgð Kadis sýnir á spilin hjá Evrópusambandinu » Fleiri tengdar fréttir Evrópusambandið Minntist ekki á varanlegar undanþágur Fagna tímamótasigri Þúsundum meinaður aðgangur að ríkjum ESB Leggur til tímabundna frestun vegna Íransstríðsins Ragnar Þór telur skynsamlegt að sjá hvað er í boði » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þór/KA - FH, staðan er 1:1 Íslendingarnir í vænlegri stöðu í Þýskalandi Sumar undanþágur tímabundnar en aðrar varanlegar „Enginn veit hver er við stjórnvölinn“ Þróttur byrjar leiktíðina af krafti – Jafnt á Ísafirði Umræðan Verkin sýna merkin Tungutak eyjamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ölgerðin lagði ríkið í Somersby-máli Hjón á áttræðisaldri drepin í drónaárás „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Veltihringrásin nálgast vendipunkt Mest lesið Í gær Í vikunni Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Miðflokksfáni deilir fánastöng með hinsegin fána „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Útlendingar tæp 70% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð Skemmdarvargar lögðu salerni í rúst Meirihlutinn í Kópavogi fallinn „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Sakar formanninn um leyndarhyggju Vendinga að vænta í veðrinu Vendinga að vænta í veðrinu Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Innkalla hakk vegna gruns um salmonellu Sjálfstæðisflokkur stekkur frá Samfylkingu Ekið á gangandi vegfaranda Gríðarlegar tafir eru rannsóknarefni Hafa hótað og áreitt starfsfólk Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Vendinga að vænta í veðrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Hefja gjaldtöku við Egilshöll Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Nýjast á mbl.is » Þór/KA - FH, staðan er 1:1 Íslendingarnir í vænlegri stöðu í Þýskalandi Sumar undanþágur tímabundnar en aðrar varanlegar „Enginn veit hver er við stjórnvölinn“ Þróttur byrjar leiktíðina af krafti – Jafnt á Ísafirði Umræðan Verkin sýna merkin Tungutak eyjamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segist hafa aflýst ferð sendifulltrúa til Pakistans Útlendingar tæp 70% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð Óttast ekki hótun Bandaríkjanna Ekið á konu á gangi við Skógarveg Mest lesið Í gær Í vikunni Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Miðflokksfáni deilir fánastöng með hinsegin fána „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Útlendingar tæp 70% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð Skemmdarvargar lögðu salerni í rúst Meirihlutinn í Kópavogi fallinn „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Sakar formanninn um leyndarhyggju Vendinga að vænta í veðrinu Vendinga að vænta í veðrinu Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Innkalla hakk vegna gruns um salmonellu Sjálfstæðisflokkur stekkur frá Samfylkingu Ekið á gangandi vegfaranda Gríðarlegar tafir eru rannsóknarefni Hafa hótað og áreitt starfsfólk Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Vendinga að vænta í veðrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Hefja gjaldtöku við Egilshöll Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin

Share this article