Innlent | mbl | 26.4.2026 | 15:40 Undanþágur aðallega tímabundnar Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Eyþór Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Sumar undanþágur tímabundnar en aðrar varanlegar „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Ekkert mat á kostnaði vegna aðildarviðræðna „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Aðild geti styrkt öryggi Íslands í víðum skilningi » Fleiri tengdar fréttir Evrópusambandið „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Minntist ekki á varanlegar undanþágur Fagna tímamótasigri Þúsundum meinaður aðgangur að ríkjum ESB Leggur til tímabundna frestun vegna Íransstríðsins » Fleiri tengdar fréttir Aðildarríkjum Evrópusambandsins ber að innleiða regluverk Evrópusambandsins og undanþágur sem veittar eru nýjum aðildarríkjum eru aðallega tímabundnar. Þetta er mat Sigurðar Inga Jóhannssonar, þingmanns Framsóknarflokksins. Sigurður Ingi situr í utanríkismálanefnd Alþingis en Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðhrera kom og sat fyrir svörum um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu á opnum fundi nefndarinnar á föstudaginn. Frétt af mbl.is Sumar undanþágur tímabundnar en aðrar varanlegar Utanríkisráðherra tali um viðmið fremur en skilyrði Sigurður Ingi gefur lítið fyrir þær fullyrðingar Þorgerðar Katrínar að Evrópuréttur muni aðeins gilda hér að því marki sem kemur fram í aðildarsamningi, eins og hún hélt fram á fundinum. „Það eru augljóst að þegar 400.000 manna þjóð sest við samningsborðið með Evrópusambandi 27 ríkja, sem telur 400 milljónir manns, þá er þessi Evrópuréttur bara fyrir hendi. Aðild nýrra landa að sambandinu byggist aðallega á undanþágum, sem eru nær alltaf tímabundnar,“ segir Framsóknarformaðurinn fyrrverandi í samtali við mbl.is. Umsókn Íslands frá árinu 2010, sem ríkisstjórnin telur í gildi, byggir á þingsályktun frá þeim tíma. „Í þeirri ályktun voru ákveðin skilyrði sett en utanríkisráðherra talar núna um þessi skilyrði sem viðmið, að það væri ekki óeðlilegt að nota þessi viðmið. Það er auðvitað ekki það sama. Ef þingsályktunin gildir þá hljóta það að vera skilyrðin sem við förum í viðræður út á,“ segir Sigurður Ingi sem telur að með þessu geri ráðherrann lítið úr þessum skilyrðum. Frétt af mbl.is „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Framsal löggjafarvalds Bendir Sigurður Ingi einnig á það hve víðtækt framsal löggjafarvalds felist í inngöngu í Evrópusambandið. „Undanfarin ár hefur umræðan snúist mikið um bókun 35, jafnvel með þeirri bókun getum við þó sett lög þótt þau uppfylli ekki Evrópurétt, það getur haft afleiðingar en við getum gert það. Hið augljósa er að með aðild í Evrópusambandið getum við það ekki.“ Frétt af mbl.is Minntist ekki á varanlegar undanþágur Frestun komi ekki til greina Gagnrýnir Sigurður Ingi hve knappan tíma þjóðin muni hafa til að gera upp hug sinn fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna sem að óbreyttu fer fram þann 29. ágúst. Hið minnsta þrír mánuðir verða að líða frá samþykkt þingsályktunar og fram að þjóðaratkvæðagreiðslu og er útlit fyrir að tillagan verði ekki samþykkt fyrr en seint í maí. Telur Sigurður Ingi að ríkisstjórnin hafi ákveðið að fara í Evrópuvegferð sína til að dreifa athyglinni frá efnahagsástandi í landinu, sem hann segir ríkisstjórnina ekki hafa náð tökum á. Frétt af mbl.is Alveg skýrt um hvað verður kosið Hann hefur spurt utanríkisráðherra að því hvort það komi til greina að fresta þjóðaratkvæðagreiðslunni upp að einhverju marki. „Ég spurði hana hvort það kæmi til greina að fresta þessu og hún taldi ekki tilefni til þess, hún taldi þetta nægan tíma. Ég myndi halda að það stefni í þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst. Þá er eins gott að almenningur fái eins góðar upplýsingar um staðreyndir málsins og hægt er,“ segir Sigurður Ingi að lokum. Tengdar fréttir Ísland og ESB Sumar undanþágur tímabundnar en aðrar varanlegar „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Ekkert mat á kostnaði vegna aðildarviðræðna „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Aðild geti styrkt öryggi Íslands í víðum skilningi » Fleiri tengdar fréttir Evrópusambandið „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Minntist ekki á varanlegar undanþágur Fagna tímamótasigri Þúsundum meinaður aðgangur að ríkjum ESB Leggur til tímabundna frestun vegna Íransstríðsins » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » GDRN orðin tveggja barna móðir HM í hættu hjá Hollendingnum? Undanþágur aðallega tímabundnar Fengu konunglega viðurkenningu Rúnar lagði Arnór í fallbaráttuslagnum Umræðan Verkin sýna merkin Tungutak eyjamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sumar undanþágur tímabundnar en aðrar varanlegar Undanþágur aðallega tímabundnar Leiðtogar heimsins „í áfalli“ Árásin undirstrikar þörfina: „Við þurfum danssalinn“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Ég tala íslensku! „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Verslanirnar vilja fá íslenskar gúrkur Viðsnúningur eftir sársaukafullar aðgerðir Samfylkingin á flugi og meirihlutinn fallinn Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Skemmdarvargar lögðu salerni í rúst Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Miðflokksfáni deilir fánastöng með hinsegin fána Útlendingar tæp 70% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Meirihlutinn í Kópavogi fallinn Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Vendinga að vænta í veðrinu Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Nýjast á mbl.is » GDRN orðin tveggja barna móðir HM í hættu hjá Hollendingnum? Undanþágur aðallega tímabundnar Fengu konunglega viðurkenningu Rúnar lagði Arnór í fallbaráttuslagnum Umræðan Verkin sýna merkin Tungutak eyjamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Þriggja stiga skjálfti í Bárðarbungu Sumar undanþágur tímabundnar en aðrar varanlegar „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Ég tala íslensku! „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Verslanirnar vilja fá íslenskar gúrkur Viðsnúningur eftir sársaukafullar aðgerðir Samfylkingin á flugi og meirihlutinn fallinn Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Skemmdarvargar lögðu salerni í rúst Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Miðflokksfáni deilir fánastöng með hinsegin fána Útlendingar tæp 70% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Meirihlutinn í Kópavogi fallinn Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Vendinga að vænta í veðrinu Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum