Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Enginn ádráttur um undanþágur

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 31.7.2026 | 13:35 Enginn ádráttur um undanþágur Greining Morgunblaðsins á öllum aðildarsamningum ESB, sem birtist á miðvikudag, sýndi sömu meginreglu. Ekkert nýtt aðildarríki hefur fengið varanlega undanþágu frá heilu fyrirliggjandi samstarfssviði við inngöngu. AFP Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Ríki ESB á móti varanlegum undanþágum Skiptar skoðanir um ESB „Verðum bara eitthvað peð þegar bjátar á“ „Það þarf bara meiri aga á vinnumarkaði“ 1.600 greitt atkvæði um aðildarviðræður » Fleiri tengdar fréttir Ekkert í opinberri umfjöllun aðildarríkja Evrópusambandsins (ESB) um umsókn Íslands 2009–2010 gaf fyrirheit um stórvægileg frávik frá grunnstefnu eða regluverki þess. Þvert á móti lögðu áhrifamikil ríki áherslu á að frávik, sérlausnir og aðlögunarfrestir yrðu sem fæst. Sjávarútvegur var greinilega efstur í huga, en athugasemdir vörðuðu einnig hvalveiðar, landbúnað, byggðamál, fjármálaeftirlit, erlenda fjárfestingu og Icesave. Ekkert ríki minntist á varanlega undanþágu Íslands frá heilu samstarfssviði. Raunar sagði íslenski aðalsamningamaðurinn þýskri þingnefnd að Ísland byggist ekki við varanlegum undanþágum í fiskveiðum eða hvalveiðum, heldur sérlausnum. Þetta sýnir greining Morgunblaðsins á opinberum gögnum þjóðþinga og ríkisstjórna ríkjanna 27, sem sátu í ESB árið 2010. Bretland er þar talið með. Skilyrtur stuðningur Öll ríkin samþykktu viðræður við Ísland, en í því fólst ekki fyrir fram samþykki á aðild eða væntanlegum samningi. Aðildarsamning þyrfti síðar að samþykkja og fullgilda í öllum aðildarríkjunum og hvert þeirra hefði í reynd neitunarvald. Af þeim ríkjum sem birtu ítarlegasta afstöðu settu Þýskaland, Frakkland, Holland og Bretland skýrust skilyrði. Þýska sambandsþingið nefndi sérstaklega sjávarútveg, landbúnað, hvalveiðar, fjármálaþjónustu, byggðastefnu og fjármálaeftirlit. Það vildi jafnframt að eignarhald í íslenskum sjávarútvegi yrði opnað fyrir fjárfestingum frá ESB í takt við meginregluna um frjálst fjármagnsflæði. Frávik og aðlögunarákvæði skyldu hins vegar vera sem fæst. Evrópumálanefnd franska þjóðþingsins tók í sama streng. Hún nefndi lokun íslenskra fiskimiða fyrir erlendum skipum, bann við erlendu eignarhaldi í sjávarútvegi, framseljanlega kvóta og hvalveiðar. Frávik frá reglusafninu og bráðabirgðaákvæði skyldu vera fá og smá. Bretar vildu lausn Icesave, hvalveiðibann og fulla aðlögun í sjávarútvegi, landbúnaði og byggðamálum. Hollendingar nefndu Icesave, en Portúgalar vildu ekki láta Icesave tefja og nefndu mögulega aðlögunarfresti í sjávarútvegi. Skýr regla ESB Leiðtogaráðið undirstrikaði þessa grundvallarafstöðu hinn 17. júní 2010. Viðræðurnar skyldu miða að því að Ísland tæki reglusafn ESB upp „í heild sinni“. Samningsramminn, sem öll ríkin samþykktu 26. júlí, gekk ekki skemmra. Þar sagði að sértækar aðlaganir kæmu til greina og örfáar, stuttar og umfangslitlar tímabundnar ráðstafanir. Aðlögunarfrestir mættu hvorki breyta reglum né stefnum ESB, eða raska samkeppni. Íslensk stjórnvöld hafa vísað til samkomulags um að lagabreytingar og stofnanabreytingar vegna aðildar yrðu ekki gerðar fyrr en þjóðin hefði samþykkt aðildarsamning. Sú frásögn kemur fram í skýrslu utanríkisráðuneytisins frá 2013. Engin undirrituð bókun, fundargerð eða yfirlýsing ESB, sem staðfestir slíkt heiðursmannasamkomulag, hefur hins vegar fundist. Samningsramminn gerir þvert á móti ráð fyrir viðmiðum um lagaaðlögun, framkvæmd og stjórnsýslugetu meðan á viðræðum stendur, þótt tæknilegar útfærslur geti beðið aðildar. Gömul afstaða, sama umsókn Ekki stendur þó allt í þessari umfjöllun frá 2010. Umsagnirnar eru sextán ára gamlar og margt hefur breyst síðan, bæði á Íslandi og hjá ESB. Icesave er ekki lengur á dagskrá og fjármálakerfið og eftirlit í góðu lagi. Ríkisstjórnin biður hins vegar um umboð til að hefja fyrri viðræður á ný, ekki til að senda nýja umsókn sem ríkin þyrftu að taka afstöðu til frá byrjun. Athugasemdirnar frá 2010 halda því gildi sínu þar til nýrri afstaða kemur fram. Fátt bendir til breytinga á því, öðru nær. Hollenska þingið samþykkti í júní nær einróma að sameiginlega fiskveiðistefnan, þar með taldar reglur um aðgang að hafsvæðum og fiskimiðum, skyldi áfram vera óaðskiljanlegur hluti regluverksins í aðildarviðræðum. Sérlausnir, ekki undanþágur Greining Morgunblaðsins á öllum aðildarsamningum ESB, sem birtist á miðvikudag, sýndi sömu meginreglu. Ekkert nýtt aðildarríki hefur fengið varanlega undanþágu frá heilu fyrirliggjandi samstarfssviði við inngöngu. Sérlausnir og aðlögunarfrestir voru hins vegar fjölmargir og tóku mið af afmörkuðum staðháttum eða sérþörfum, flestir þó af erfiðum aðstæðum fyrrverandi austantjaldsríkja. Hið auðuga og þróaða Ísland er ekki í þeim sporum. Það gæti þó leitað sérlausna um til dæmis áfengiseinkasölu, strandveiðar eða jarðakaup og fresta vegna landbúnaðar, byggðamála eða fjármagnsflæðis. Síðasta inngangan í ESB gefur sínar vísbendingar og kjörið að kynna sér þann aðildarsaming vilji menn sjá hvað er í boði og hvers kyns frávik var samið um. Króatía fékk eina afmarkaða sérlausn, þrjá pakka tímabundinna frávika og aðlögunarfresti til nokkurra ára á tíu sviðum. Jafnvel með mikilli sáttfýsi ESB yrðu íslensk frávik því líklega fá og þröng. Varanleg undanþága frá heilu samstarfssviði væri fordæmalaus – og færi beinlínis gegn þeim samningsramma sem ríkisstjórnin vill nú taka upp að nýju. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Ríki ESB á móti varanlegum undanþágum Skiptar skoðanir um ESB „Verðum bara eitthvað peð þegar bjátar á“ „Það þarf bara meiri aga á vinnumarkaði“ 1.600 greitt atkvæði um aðildarviðræður » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Stutt í tímabilið og lykilmaður týndur Hverju búast menn við í aðildarsamningi? Enginn ádráttur um undanþágur Saklaus læknatími endaði með innlögn Myndskeið: Leikmenn Liverpool rifust Umræðan Hindranir og hagvöxtur í litlu hagkerfi Fullveldi og fjárhagslegt sjálfstæði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ríki ESB á móti varanlegum undanþágum Gekkst undir lungnaígræðslu 27 ára Bandero siglir utan í skip Hvals Myndir: Bandero kominn til hafnar Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Inngrip auðveld innan landhelgi Var í afneitun vegna versnandi heilsu Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Myndir: Bandero kominn til hafnar Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Afdrif stúkunnar ráðast fljótlega Bandero siglir utan í skip Hvals Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Myndskeið: „Nánast eins og í James Bond-mynd“ Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Rændu heilum gámi af kampavíni Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Gunnar Þórðarson er látinn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Nýjast á mbl.is » Stutt í tímabilið og lykilmaður týndur Hverju búast menn við í aðildarsamningi? Enginn ádráttur um undanþágur Saklaus læknatími endaði með innlögn Myndskeið: Leikmenn Liverpool rifust Umræðan Hindranir og hagvöxtur í litlu hagkerfi Fullveldi og fjárhagslegt sjálfstæði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndskeið: „Nánast eins og í James Bond-mynd“ Saklaus læknatími endaði með innlögn Myndir: Bandero kominn til hafnar Minnast Gunnars: „Maður hélt niðri í sér andanum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Inngrip auðveld innan landhelgi Var í afneitun vegna versnandi heilsu Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Myndir: Bandero kominn til hafnar Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Afdrif stúkunnar ráðast fljótlega Bandero siglir utan í skip Hvals Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Myndskeið: „Nánast eins og í James Bond-mynd“ Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Rændu heilum gámi af kampavíni Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Gunnar Þórðarson er látinn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“

Share this article