Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Varanlegar undanþágur varla í boði

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 30.7.2026 | 10:25 Varanlegar undanþágur varla í boði Ráðamenn ESB hafa sagt að hugsanlegar viðræður við Ísland yrðu raunverulegar samningaviðræður og að þar mætti sýna sveigjanleika. Varanleg undanþága er því ekki ómöguleg, en afar ólíkleg, því fordæmin eru engin. mbl.is/Sibba Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB „Það þarf bara meiri aga á vinnumarkaði“ 1.600 greitt atkvæði um aðildarviðræður Segir fiskveiðistefnu ESB hafa brugðist Hart tekist á um vexti og atvinnuleysi Beint: Fundur Áfram Ísland á Egilsstöðum » Fleiri tengdar fréttir Greining Morgunblaðsins á aðildarsamningum, bókunum og öðrum frumheimildum Evrópusambandsins (ESB) og fyrirrennara þess leiðir í ljós að ekkert ríki hefur við inngöngu fengið varanlega undanþágu frá heilu meginsviði reglusafnsins eða stórum þáttum þess. Slíkar undanþágur (e. opt-outs) hafa raunar sjaldan verið veittar yfirleitt. Þær hafa aðeins verið veittar ríkjum sem þegar voru aðilar, einkum þegar nýir sáttmálar færðu sambandinu aukin verkefni og valdheimildir. Þannig fékk Danmörk undanþágur í tengslum við Maastricht-sáttmálann og Bretland og Írland varanlega undanþágu frá Schengen. Graf/mbl.is Frávikin ekki öll talin Í meðfylgjandi greiningu eru heimildirnar aðildarsamningar og fylgibókanir í EUR-Lex-gagnasafni sambandsins. Þar er ekki hver einstök sérregla eða tæknilegt ákvæði talið sérstaklega, heldur tekið saman í efnislega pakka, eins og gert var í viðræðunum. Taflan sýnir því eðli og umfang frávikanna, ekki fjölda tilvísana í lagasafninu. Jafnvel þröng varanleg frávik frá einstökum reglum eru afar fátíð. Langflest það sem í almennu tali er kallað „undanþágur“ reynist vera tímabundinn aðlögunarfrestur, sérlausn innan sameiginlegrar stefnu, bókun um sérstakar aðstæður eða landfræðilega afmörkun. Fiskveiðisvæði Möltu er lýsandi dæmi. Þar voru settar sérstakar reglur um 25 sjómílna stjórnunar- og verndarsvæði fyrir smábáta og strandveiðar. En það er innan sameiginlegu fiskveiðistefnunnar og aðgangurinn ekki bundinn við Maltverja. Bókunin um Álandseyjar varðveitir hins vegar aldagamla þjóðréttarlega og sjálfstjórnarlega sérstöðu eyjanna (svipað og átti við um Ermarsundseyjar Breta og ýmsar fjarlægar eyjar Frakka og Hollendinga), en undanskilur Finnland ekki innri markaðnum. Graf/mbl.is Krafan um allt reglusafnið Eftir Maastricht-sáttmálann 1992 var aðildarstefnan hert, en Kaupmannahafnarskilyrðin frá 1993 og síðari útfærsla þeirra gera ráð fyrir að umsóknarríki taki á sig skuldbindingar aðildar og innleiði reglusafnið í heild, án undantekninga. Svigrúmið liggur fyrst og fremst í tímabundinni aðlögun og afmörkuðum sérlausnum. Ráðamenn ESB hafa sagt að hugsanlegar viðræður við Ísland yrðu raunverulegar samningaviðræður og að þar mætti sýna sveigjanleika. Varanleg undanþága er því ekki ómöguleg, en afar ólíkleg, því fordæmin eru engin. Skapandi sérlausnir innan fiskveiði- eða landbúnaðarstefnunnar eru mun trúlegri, en samningsafstaða ESB mælir fyrir um að þær verði hvorki margar né víðtækar. Tengdar fréttir Ísland og ESB „Það þarf bara meiri aga á vinnumarkaði“ 1.600 greitt atkvæði um aðildarviðræður Segir fiskveiðistefnu ESB hafa brugðist Hart tekist á um vexti og atvinnuleysi Beint: Fundur Áfram Ísland á Egilsstöðum » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Varanlegar undanþágur varla í boði Mega yfirgefa United „Alvarlegt brot gegn velferð þessara dýra“ Fá mikinn liðstyrk fyrir lokasprettinn Mikil krísa hjá Ronaldo Umræðan Áður en lagt er af stað Skoðum fyrst, ákveðum svo Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Lítið eftir“ af timburhúsinu í Stykkishólmi Rændu heilum gámi af kampavíni Skyttur á vaktinni í nótt Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Skúli Steinar Pétursson Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Gunnar Þórðarson er látinn Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Rændu heilum gámi af kampavíni Vöruðu við nýju landamærakerfi Gríðarlegt tjón: „Þetta eru hryðjuverk“ Unnið að brottvísun sex vasaþjófa úr landi Hvetja íbúa til að fylgjast með „Lítið eftir“ af timburhúsinu í Stykkishólmi Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Vaknaði við minka í garðinum „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Þetta gæti farið verr en menn halda“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ „Þetta er ófremdarástand“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Nýjast á mbl.is » Varanlegar undanþágur varla í boði Mega yfirgefa United „Alvarlegt brot gegn velferð þessara dýra“ Fá mikinn liðstyrk fyrir lokasprettinn Mikil krísa hjá Ronaldo Umræðan Áður en lagt er af stað Skoðum fyrst, ákveðum svo Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Gríðarlega skaðlegt málstað dýravelferðar „Þetta er ófremdarástand“ Skyttur á vaktinni í nótt Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Skúli Steinar Pétursson Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Gunnar Þórðarson er látinn Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Rændu heilum gámi af kampavíni Vöruðu við nýju landamærakerfi Gríðarlegt tjón: „Þetta eru hryðjuverk“ Unnið að brottvísun sex vasaþjófa úr landi Hvetja íbúa til að fylgjast með „Lítið eftir“ af timburhúsinu í Stykkishólmi Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Vaknaði við minka í garðinum „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Þetta gæti farið verr en menn halda“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ „Þetta er ófremdarástand“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“

Share this article