Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Falast eftir meira landi í Kópavogi

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 4.4.2026 | 11:15 Falast eftir meira landi í Kópavogi GKG Frá framkvæmdum á svæði Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar árið 2021. Klúbburinn vill nú meira land. Morgunblaðið/Árni Sæberg Kristján Jónsson [email protected] Setja bókamerki Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, GKG, sendi nýlega erindi til Kópavogsbæjar þar sem klúbburinn falast eftir meira landi í Kópavogi fyrir golfíþróttina. GKG óskar eftir því að komið verði á fót nefnd sem kanni þá möguleika sem eru í stöðunni. Í nefndinni yrðu fulltrúar frá sveitarfélaginu og klúbbnum samkvæmt tillögunni. Framkvæmdastjóri GKG, Agnar Már Jónsson, segir ekkert lát vera á vinsældum íþróttarinnar hérlendis. Mikil fjölgun kylfinga hafi orðið í kórónuveirufaraldrinum og hún hafi haldið áfram síðan. Nú þurfi fólk á höfuðborgarsvæðinu gjarnan að bíða í 5-6 ár á biðlistum eftir því að fá fulla aðild að golfklúbbi. „Þetta er ekki ásættanleg staða, ekki síst þar sem við predikum lýðheilsu og samveru foreldra með börnunum. Að okkar mati er golfið öflugasti vettvangurinn til að sameina þessa tvo þætti,“ segir Agnar og bendir á að mikill fjöldi íbúa í Kópavogi spili golf eða vilji spila golf. 17% íbúa eru kylfingar „Um 15% landsmanna spila golf í einhverjum mæli. Ef við skoðum Kópavog þá eru um sjö þúsund kylfingar í Kópavogi, eða um 17% af íbúum. En innan landamarka Kópavogs eru einungis níu golfholur,“ segir Agnar en til útskýringar er GKG með sína starfsemi að mestu leyti í landi Garðabæjar. Í Garðabæ eru einnig Golfklúbburinn Oddur og Golfklúbbur Álftaness og því er töluvert framboð í því sveitarfélagi. Þegar Agnar og hans fólk hjá GKG horfa til Kópavogs sjá þau tækifæri á tveimur stöðum og þessi svæði eru nefnd í erindinu til sveitarfélagsins. „Annars vegar í Fossvogsdalnum því þar væri hægt að koma fyrir níu holu velli með par 4 og par 3 holum sem væri tilvalinn fyrir börn, unglinga, öldunga, byrjendur og þá sem vilja æfa járnaspilið. Hins vegar er það misgengissvæði við Guðmundarlund. Þar má ekki byggja en gæti verið gott land fyrir golfvöll.“ Erindið hefur verið yfirfarið hjá sveitarfélaginu og sent áfram til sviðsstjóra umhverfissviðs Kópavogsbæjar. 860 börn í klúbbnum Starfsemi GKG er umfangsmikil og Agnar segir klúbbinn vera með fjölmennasta barna- og unglingastarf golfklúbba á landinu. Raunar hefur áður komið fram hjá honum í blaðinu að ólíklegt sé að nokkur golfklúbbur í Evrópu sé með fleiri börn og unglinga á meðlimaskrá. „Við erum með 860 börn innan okkar vébanda og svæðið hjá okkur er alveg sprungið. Við getum því ekki bætt við okkur eins og er. Við verðum að hugsa til næstu ára og hugsa stórt. Við þurfum að stækka við okkur þannig að við getum haldið áfram að taka á móti ungum iðkendum. Land er af skornum skammti á höfuðborgarsvæðinu og því koma ekki mörg svæði til greina en þarna eru þó tvö svæði sem við teljum að henti vel fyrir okkar starfsemi,“ segir Agnar sem fer fyrir klúbbi sem tilheyrir tveimur sveitarfélögum sem er óvenjulegt hérlendis. „Það hefur sína kosti og sína galla. Nú er Garðabær í miklum framkvæmdum á okkar svæði því hluti af Mýrinni [golfvöllur] fer undir landsvæði fyrir Garðabæ. Sveitarfélagið mun bæta okkur það upp með því að byggja níu holu völl upp að Vífilsstaðavatni. Golfholum mun ekki fjölga hjá okkur með þessu heldur koma níu holur í staðinn fyrir níu holur sem hverfa,“ segir Agnar Már Jónsson. Meistarar Hulda Clara Gestsdóttir og Aron Snær Júlíusson fóru í gegnum ungmennastarfið hjá GKG og hafa bæðið orðið Íslandsmeistarar. Morgunblaðið/Ólafur Árdal Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Risk assessment being prepared for Iceland Falast eftir meira landi í Kópavogi Ráðist gegn stuðningsmönnum Ísraels í Hollandi Tíska þarf ekki að snúast um dýr merki Uppselt á landsleikinn Umræðan Menn láta nýtt vín á nýja belgi Enn ein hótun Trumps Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fylgdust með flugtakinu frá Walmart-bílastæði Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Af hverju Bab al-Mandeb? Biðlistinn bara lengist og lengist Mest lesið Í gær Í vikunni Leigja út heimili á ríflega milljón Andlát: Steinar J. Lúðvíksson Peningunum betur varið í annað Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Íbúðir ekki heimilar í Naustinu Borgin kallar eftir aðkomu ríkisins Varað við hættulegum aðstæðum fyrir austan Gera áhættumat fyrir Ísland Fræðimannsíbúð laus til umsóknar Hefur unnið að Artemis-áætluninni í áratug Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Aftur í eigu fjölskyldunnar Öskurrifust í verslunarmiðstöð og löggan kölluð til Að í alla nótt: „Þetta er föstudagurinn laaaangi“ „Stórkostlegt að sjá þjóðina taka höndum saman“ Þremur afhendingarstöðvum áfengis lokað Óánægja með gjöf Smáríkisins Björn snýr sér að hlaðvarpsgerð Reyna ekki að hrifsa til sín olíu Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun Hópur ferðamanna setti allt í vasana Nýjast á mbl.is » Risk assessment being prepared for Iceland Falast eftir meira landi í Kópavogi Ráðist gegn stuðningsmönnum Ísraels í Hollandi Tíska þarf ekki að snúast um dýr merki Uppselt á landsleikinn Umræðan Menn láta nýtt vín á nýja belgi Enn ein hótun Trumps Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Biðlistinn bara lengist og lengist Fylgdust með flugtakinu frá Walmart-bílastæði Af hverju Bab al-Mandeb? Hafa ekki náð jafn litlu landsvæði á víglínunni Mest lesið Í gær Í vikunni Leigja út heimili á ríflega milljón Andlát: Steinar J. Lúðvíksson Peningunum betur varið í annað Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Íbúðir ekki heimilar í Naustinu Borgin kallar eftir aðkomu ríkisins Varað við hættulegum aðstæðum fyrir austan Gera áhættumat fyrir Ísland Fræðimannsíbúð laus til umsóknar Hefur unnið að Artemis-áætluninni í áratug Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Aftur í eigu fjölskyldunnar Öskurrifust í verslunarmiðstöð og löggan kölluð til Að í alla nótt: „Þetta er föstudagurinn laaaangi“ „Stórkostlegt að sjá þjóðina taka höndum saman“ Þremur afhendingarstöðvum áfengis lokað Óánægja með gjöf Smáríkisins Björn snýr sér að hlaðvarpsgerð Reyna ekki að hrifsa til sín olíu Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun Hópur ferðamanna setti allt í vasana

Share this article