Við viljum að fólk mæti einfaldlega í Keflavík, slökkvi á hausnum og njóti, svo sjáum við um rest,“ segir Rögnvaldur Magnússon, PGA-menntaður golfkennari og umsjónarmaður golfferða Golfskálans. Rögnvaldur hefur starfað við golfkennslu frá árinu 2012 og verið fararstjóri í nær áratug. Hann þekkir bæði leikinn og upplifunina sem þarf til að gera góða golfferð frábæra. Aðaláfangastaður Golfskálans undanfarin ár hefur verið Almerimar á Spáni. „Þetta er okkar stærsti og vinsælasti staður. Endurkomuhlutfallið er hátt og fólki líður einfaldlega mjög vel þar,“ segir Rögnvaldur. Flogið er beint frá Keflavík til Almería og þaðan er haldið á fjóra mismunandi staði á svæðinu: Almerimar, Los Moriscos, La Envía og Alborán. Á hverjum stað er boðið upp á vandaða aðstöðu, hótel við golfvelli, íslenska fararstjórn og skipulagða dagskrá. Golfskólinn sjálfur hefur jafnan verið haldinn á Alborán að vori, en vegna mikillar eftirspurnar var bætt við námskeiðum á Almerimar. „Golfskólinn fyllist nánast um leið og hann fer í sölu,“ segir Rögnvaldur. „Það er eins og annar hver Íslendingur sé annaðhvort byrjaður í golfi eða að hugsa um það.“ Aðaláfangastaður Golfskálans undanfarin ár hefur verið Almerimar á Spáni. Hann leggur áherslu á að námskeiðin séu ekki eingöngu fyrir byrjendur. „Þetta er fyrir öll getustig. Fólk kemur til að bæta sig, fá faglega leiðsögn og njóta þess að vera í góðum félagsskap.“ Allir kennarar Golfskólans eru íslenskir og með alþjóðleg PGAréttindi. „Við leggjum metnað í að vera með fagfólk,“ segir Rögnvaldur sem mun sjálfur kenna í vor ásamt tveimur öðrum reyndum kennurum. Fararstjórar á hverjum stað eru jafnframt þaulreyndir og þekkja svæðin vel. Heildstæð upplifun Ferðirnar eru settar upp sem heildstæðir pakkar þar sem allt er innifalið: flug, akstur til og frá flugvelli, hótelgisting, fyrirfram bókaðir rástímar og íslensk fararstjórn. Á flestum stöðum er morgun- og kvöldverður innifalinn. „Hugmyndin er sú að fólk þurfi ekki að hafa áhyggjur af neinu. Þú mætir með golfsettið og við umvefjum þig þar til þú ert kominn heim aftur,“ segir Rögnvaldur. Fyrir þá sem ekki vilja ferðast með eigið sett er hægt að leigja búnað á staðnum. Ferðirnar eru mismunandi langar, allt frá einni viku upp í ellefu eða tólf nætur. Dagskipulagið mótast oft af golfi á morgnana þegar hitinn er þægilegastur. „Fólk vaknar snemma, fær sér morgunmat og fer út á völl. Þegar golfið klárast um hádegisbil tekur við afslöppun, við sundlaugina, á ströndinni eða á veitingastöðum í nágrenninu,“ segir Rögnvaldur. Á þremur af fjórum stöðum á Almería-svæðinu er stutt í strönd og víða í göngufæri. Auk Almería býður Golfskálinn upp á ferðir á Alicante-svæðið, meðal annars til Villaitana og La Finca. „Villaitana er að okkar mati einn glæsilegasti kosturinn á Alicante-svæðinu,“ segir Rögnvaldur og nefnir fjölbreytta vallaraðstöðu og hótel sem henti bæði kylfingum og þeim sem vilja einfaldlega njóta sólar og slökunar. La Finca kallar hann „goðsögn“ í golfheiminum. „Þetta er völlur sem margir hafa heyrt um lengi áður en þeir spila hann, og hann stendur undir væntingum.“ Þrátt fyrir að margir spyrji um forgjafarmörk á spænskum völlum segir Rögnvaldur stemninguna almennt afslappaða. „Það sem skiptir máli er leikhraðinn. Hvort þú ert með lága eða háa forgjöf skiptir minna máli en að halda flæði á vellinum.“ Aðsókn í ferðirnar hefur verið góð og eftirspurn sérstaklega mikil í golfskólana. Rögnvaldur segir þó alltaf reynt að finna lausnir ef fólk hefur áhuga. „Við viljum vera sveigjanleg og þjónustulunduð. Markmiðið er einfalt, að bjóða upp á fagmennsku, góða skipulagningu og upplifun sem fólk vill endurtaka,“ segir hann að lokum.