Evrópuferðir býður upp á sérhæfðar golfferðir með áherslu á gæði, góð verð og sveigjanleika. Stofnandi og eigandi ferðaskrifstofunnar er Þráinn Vigfússon en hann hefur yfir 30 ára reynslu í ferðaþjónustu og hefur áður gegnt stjórnendastöðum hjá m.a. Kynnisferðum, Iceland Travel, Vita og Icelandair. „Við byggjum á mikilli reynslu og viljum að viðskiptavinir finni fyrir öryggi,“ segir Þráinn. „Þetta snýst mikið um traust og fagmennsku.“ Fyrirtækið hefur sérhæft sig í golfferðum til Suður-Evrópu og vinnur allar ferðir í samstarfi við Icelandair. Meðal vinsælustu áfangastaða eru Kanaríeyjar, þar á meðal Gran Canaria og Tenerife, auk svæða á borð við Costa del Sol, Algarve, Lissabon og Alicante. Þráinn segir að á Tenerife sé Las Madrigueras-hótelið sérstaklega vinsælt sem staðsett er við hinn glæsilega golfvöll Las Americas. Á Gran Canaria bjóða Evrópuferðir upp á dvöl á fimm hótelum Lopesansamstæðunnar, með aðgang að þremur framúrskarandi golfvöllum: Anfi Tauro Golf, Meloneras Golf og Maspalomas Golf. „Þar fær fólk í raun það besta úr tveimur heimum, spilar á frábærum völlum en dvelur jafnframt við ströndina með fjölbreytt úrval veitingastaða og afþreyingar.“ Sveigjanlegir pakkar án fararstjóra Ferðirnar eru skipulagðar án fararstjóra, sem gerir Evrópuferðum kleift að halda kostnaði niðri. Allir rástímar eru bókaðir fyrir fram og viðskiptavinir velja sjálfir fjölda hringja. Algengast er að fólk fari í eina til tvær vikur og spili fimm hringi á viku, en margir kjósa lengri dvöl. „Við aðlögum pakkana að þörfum hvers og eins. Þetta hentar jafnt einstaklingum og hópum, allt frá fjórum upp í fjörutíu manns. Mjög algengt eru 8–12 manna golfhópar sem fara árlega saman,” segir Þráinn. Nýjung hjá fyrirtækinu eru lengri golfferðir og hafa þær verið að koma sterkt inn. „Þá getur fólk verið í fjórar vikur og fengið fasta tuttugu rástíma sem við bókum fyrir fram, ásamt golfbíl. Við mælum með að fólk taki bílaleigubíl, þannig að það geti nýtt sér aðstöðuna bæði í klúbbhúsinu og á hótelinu sem er á svæðinu. Gistingin er með fullbúnu eldhúsi og svölum eða verönd,” segir Þráinn og bætir við að þá geti fólk nýtt bílaleigubílinn til að fara í búð og skoða nærliggjandi svæði, allt niður til Gíbraltar og upp til Malaga. „Þetta er eins og að fá nasaþefinn af því að eiga sjálfur íbúð á golfstað. Fólk hefur þá tíma til að njóta svæðisins.” Á Costa del Sol hefur La Cala-svæðið reynst sérstaklega vinsælt í þessum ferðum og einnig eru í boði valkostir í Portúgal og á Alicante-svæðinu, meðal annars á hinum þekkta Las Colinas Golf & Country Club. Evrópuferðir bjóða ferðir með gistingu á fimm stjörnu lúxushótelinu Lopesan Baobab Resort í hjarta Meloneras. Vaxandi áhugi á vetrargolfi Að sögn Þráins hefur áhugi á vetrargolfi aukist verulega síðustu ár. „Margir kjósa að fara til Kanaríeyja yfir vetrarmánuðina og dvelja jafnvel í þrjár vikur, spila annan hvern dag og njóta góðs veðurs og fimm stjörnu hótela.” Evrópuferðir leggja áherslu á að vera samkeppnishæft í verði og bera sig saman við stóra erlenda aðila á borð við Golfbreaks. Með lítilli yfirbyggingu og tæknivæddum lausnum tekst að halda verði hagstæðu án þess að fórna gæðum. Þráinn bindur vonir við að Golfsýningin styrki tengsl við núverandi og verðandi viðskiptavini. „Markmiðið er að kynna okkur og sýna andlitin á bak við vörumerkið. Tímasetningin er góð, rétt áður en golftímabilið hefst á Íslandi. Við finnum fyrir miklum áhuga og viðtökurnar hafa verið afar góðar,” segir hann að lokum. Þráinn segir að áhug á vetrargolfi hafi aukist verulega undanfarin ár.