Innlent | Morgunblaðið | 6.5.2026 | 23:10 Hlynnt því að byggja golfvöll Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús á Leirdalsvelli hjá GKG. Í Baksýn má sjá hvernig völlurinn liggur úr Vetrarmýrinni í Garðabæ og upp í Leirdalinn í Kópavogi. mbl.is/Styrmir Kári Kristján Jónsson [email protected] Setja bókamerki Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs telur mikilvægt að nýr golfvöllur verði byggður í bænum í samstarfi við GKG. Nýlega sendi GKG erindi til Kópavogsbæjar þar sem óskað var eftir landi í sveitarfélaginu fyrir golfíþróttina en megnið af starfsemi klúbbsins er í landi Garðabæjar. Eðlilegt sé að svara þessu ákalli því mikil eftirspurn sé eftir því að stunda íþróttina. „Á það hefur verið bent að í Kópavogi eru aðeins níu golfholur. Við erum næststærsta sveitarfélag landsins og ég verð að segja sem bæjarstjóri að mér finnst það ekki ásættanlegt. Ekki síst vegna þess að félagsstarfið hjá GKG er mjög öflugt og vinsældir golfsins hafa aukist mikið síðustu ár, hjá börnum, ungmennum og eldri borgurum. Þá samræmist þessi uppbygging lýðheilsumarkmiðum Kópavogsbæjar og að sjálfsögðu eru lífsgæði fólgin í því að vera með golfvöll í okkar nærumhverfi.“ Á næsta kjörtímabili muni Sjálfstæðismenn í Kópavogi beita sér í málinu fái þeir til þess umboð. „Við höfum birt okkar áherslur í þessari baráttu og ein áherslan er að finna staðsetningu fyrir nýjan golfvöll í Kópavogi í góðu samráði við GKG. Við finnum að það er ákall frá Kópavogsbúum, ungum sem öldnum, um að byggja fleiri golfvelli. Við viljum auðvitað mæta slíku ákalli og um leið mæta þörfum GKG. Íþróttin fer vaxandi á Íslandi og eftirspurnin er mikil. Vatnsendahlíðin fyrir ofan Guðmundarlund hefur verið nefnd sem áhugaverður kostur og við erum reiðubúin að skoða þá staðsetningu betur og hvort hún myndi henta. Fram undan er uppbygging í Vatnsendahlíðinni; nýtt skólahverfi mun rísa og þar verða íþróttahús og grunnskóli. Í ljósi þessa er kjörið tækifæri til að skoða möguleika á nýjum golfvelli nálægt nýrri byggð,“ segir Ásdís en þetta svæði er eitt þeirra sem GKG horfir til samkvæmt erindi sínu til bæjarstjórnar. Fleira er á döfinni hjá GKG og fær klúbburinn nýtt áhaldahús sem mun bæta vinnuaðstöðu starfsmanna til muna. „Nýverið kynnti ég í bæjarráði áform okkar, ásamt Garðabæ og GKG, um að byggja nýtt áhaldahús fyrir GKG til að bæta aðstöðu klúbbsins, starfsaðstöðuna fyrst og fremst. Við áformum að uppbyggingin fari í gang strax á næsta ári. Ekki var einhugur í bæjarráði um að keyra málið áfram, sem kom okkur á óvart. Ég fann hins vegar á fjölmennum félagsfundi GKG, þar sem þessi áform okkar voru kynnt, hversu ánægðir félagsmenn voru með þau. Þörfin á uppbyggingu er fyrir hendi fyrir ört vaxandi klúbb.“ Golfklúbburinn tilheyrir sveitarfélögunum Kópavogi og Garðabæ. Þar eru Ásdís Kristjánsdóttir og Almar Guðmundsson bæjarstjórar. mbl.is/Anton Brink Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Beita Bónusáhrifunum gegn verðbólgunni Hlynnt því að byggja golfvöll „Tækifærin eru til staðar ef við bregðumst við“ Fékk tveggja mánaða bann Ráðlagt að sæta einangrun vegna hantaveiru Umræðan Bókhaldsblekkingar í boði bæjarstjóra Gagnsæi og samkeppni þegar kemur að opinberum innkaupum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki eins og upphaf kórónuveirufaraldursins Vorið lætur bíða eftir sér Þrír sjúklingar fluttir á brott: Læknar á leiðinni Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Mest lesið Í gær Í vikunni Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Meirihluti þolenda eru karlmenn Þóra og RÚV sýknuð Augljóst að upplýsingum er haldið frá þjóðinni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Nýjast á mbl.is » Beita Bónusáhrifunum gegn verðbólgunni Hlynnt því að byggja golfvöll „Tækifærin eru til staðar ef við bregðumst við“ Fékk tveggja mánaða bann Ráðlagt að sæta einangrun vegna hantaveiru Umræðan Bókhaldsblekkingar í boði bæjarstjóra Gagnsæi og samkeppni þegar kemur að opinberum innkaupum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Telja sig vera nálægt samkomulagi við Íran Hilmar vill ekki vera á matseðlinum ESB-ferlið hófst strax 2025 Íslenski skálinn opnaður: „Ég er pínu meyr“ Mest lesið Í gær Í vikunni Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Meirihluti þolenda eru karlmenn Þóra og RÚV sýknuð Augljóst að upplýsingum er haldið frá þjóðinni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda