Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ein með öllu og kók komin í 1.330 krónur

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 24.3.2026 | 8:35 Ein með öllu og kók komin í 1.330 krónur Bæjarins beztu selja pylsur á 13 stöðum en vinsælasti staðurinn er alltaf við Tryggvagötu. mbl.is/Eggert Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki Verð á pylsum hjá Bæjarins beztu hefur hækkað mikið síðustu ár. Í dag kostar pylsan 880 krónur og hefur hækkað um 19% á síðustu tveimur árum. Kók kostar 450 krónur og því er þjóðarrétturinn kominn upp í 1.330 krónur. Það er 200 krónum dýrara en fyrir tveimur árum. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir að launakostnaður hafi aukist fram úr hófi auk þess sem aðrar hækkanir bíti. Hann bendir á að Bæjarins beztu bjóði upp á frábær tilboð og verðið sé umtalsvert lægra ef fólk nýtir sér þau. Þannig kosti tvær pylsur og kók 1.690 krónur og fjölskyldutilboð, sex pylsur og fjórir drykkir, 3.500 krónur. „Stærsti þátturinn í þessu eru laun en hráefniskostnaður og opinber gjöld hafa líka hækkað. Heilbrigðiseftirlitið er til dæmis búið að þrefalda verð á stuttum tíma,“ segir Baldur Ingi Halldórsson, framkvæmdastjóri og einn eigenda Bæjarins beztu sem selja pylsur á 13 stöðum auk þess að reka vinsæla veisluþjónustu. „Ég hækka bara verð til að eiga fyrir kostnaði. Hagnaður nær aldrei yfir 10%.“ Hann segir að Bæjarins beztu borgi hærri laun en gengur og gerist í veitingageiranum enda hafi stjórnendur þar víðtæka reynslu af ágæti þess, þannig megi halda lengur í starfsfólk og fá meira út úr því. Launakostnaður alltof hár „Launakostnaður er 50% hjá okkur svo það má ekkert bregða út af. Launakostnaðurinn er farinn úr böndunum í samfélaginu og ég held að við séum að renna á rassinn með samninga í íslensku samfélagi,“ segir hann og tekur dæmi um ungan starfsmann í hlutastarfi sem geti fengið hærri laun en foreldrar hans með því að vinna á kvöldin. „17 ára krakki er með næstum því fjögur þúsund krónur á tímann í fyrstu vinnunni sinni. Á meðan eru foreldrar hans kannski með 2.500-3.000 krónur á tímann í dagvinnunni sinni og eru miklu betri starfskraftar. Laun hafa hækkað óstjórnlega mikið.“ Þrátt fyrir þetta kveðst Baldur bjartsýnn á að sumarið verði okkur Íslendingum gott. „Ég er jákvæður og held að sumarið verði gott þótt það séu áskoranir. Það er mikil þrautseigja í íslensku samfélagi.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Búið að opna Holtavörðuheiðina Ein með öllu og kók komin í 1.330 krónur Nítján ára í dái eftir rothögg Segir fjáraukalög hafa verið brotin Dorrit léttklædd á skíðum Umræðan Tryggjum jafnræði í grunnskólunum Við höfum ekki tekið upp 80% af regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skjálfti af stærðinni 2,5 við Eldey Hefur gagnrýnt stríðið harðlega: „Er frábær maður“ Getur hæglega endað með gosi Ein með öllu og kók komin í 1.330 krónur Mest lesið Í gær Í vikunni Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Getur hæglega endað með gosi „Kommissarinn“ íslenskur Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbanic „Ég er harmi slegin“ Bílar innlyksa vegna snjóflóðs Sjúkrabíl fylgt frá Egilsstöðum til Akureyrar Hrinan heldur áfram: Sá stærsti reyndist stærri „Ég er harmi slegin“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vilja hætta að rukka á kvöldin Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Ég er harmi slegin“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Nýjast á mbl.is » Búið að opna Holtavörðuheiðina Ein með öllu og kók komin í 1.330 krónur Nítján ára í dái eftir rothögg Segir fjáraukalög hafa verið brotin Dorrit léttklædd á skíðum Umræðan Tryggjum jafnræði í grunnskólunum Við höfum ekki tekið upp 80% af regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allt innanlandsflug í lamasessi til morguns „Ég er harmi slegin“ Unglingspiltur skar mann í strætó Flugslys í Kólumbíu – 80 um borð Mest lesið Í gær Í vikunni Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Getur hæglega endað með gosi „Kommissarinn“ íslenskur Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbanic „Ég er harmi slegin“ Bílar innlyksa vegna snjóflóðs Sjúkrabíl fylgt frá Egilsstöðum til Akureyrar Hrinan heldur áfram: Sá stærsti reyndist stærri „Ég er harmi slegin“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vilja hætta að rukka á kvöldin Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Ég er harmi slegin“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri

Share this article