Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hækkun frá birgjum skýrir ekki alla hækkunina

Read Full Article →

Víðtækar hækkanir hafa orðið á matvöru frá áramótum. Hækkun birgja skýrir þær að hluta en ekki öllu leyti, segir hagfræðingur ASÍ. Verðbólgumæling Hagstofunnar sem birt var í gær leiddi í ljós töluverðar hækkanir á mat og drykk, annan mánuðinn í röð. Ágúst Arnórsson, hagfræðingur hjá ASÍ, segir þetta ríma við niðurstöður verðlagseftirlitsins. Dagvöruvísitala ASÍ hefur hækkað meira á fyrstu tveimur mánuðum ársins en í byrjun síðasta árs. „Það eru víðtækar hækkanir í dagvöru, bæði hvað varðar fjölda vara sem hafa hækkað og svo umfangið. Grænmeti og sælgæti hækka mest sem og kaffi og te sem við höfum fjallað áður um,” segir Ágúst. Einhverjir vöruflokkar hafi þó lækkað og á það fyrst og fremst við um innfluttar vörur. Heilt yfir eru allar verslanir, að 10-11 undanskilinni, að hækka verð. Ágúst segir að hægt sé að skýra verðhækkanir að hluta til með hækkunum frá birgjum en ekki að öllu leyti. „Það voru auglýstar hækkanir hjá ýmsum birgjum í janúar. Einhverjar af þeim komu fram í smásölunni þá og gætu verið að gera það núna en þessi hækkun á svona breiðum grunni, við eigum ekki eina skýringu á henni.” Eru verslanir þá að hækka sína álagningu? „Við getum allavega ekki útilokað það. Við höfum verið að benda á að álagning smásala hafi verið ansi góð á síðasta ári og það er ekki loku skotið fyrir það að svo verði áfram.”

Share this article