Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Matvöruverð hækkar þvert á vöruflokka

Read Full Article →

Matvöruverð hefur hækkað meira á fyrstu þremur mánuðum ársins en í byrjun síðasta árs. Í tilkynningu Alþýðusambands Íslands (ASÍ) segir að vörukarfa verðlagseftirlits hafi hækkað um 0,68% milli febrúar og mars þessa árs. Mánaðarhækkunin er þvert á vöruflokka. Mestu munar um unnar kjöt- og mjólkurvörur en sælgæti og aðrar dýraafurðir hækka einnig. Appelsínur og fleiri ávextir lækka hins vegar í verði milli mánaða, sem og sveppir, rótarhnýði og laukur. Mestu verðhækkanirnar það sem af er ári mælast í Fjarðarkaupum (3,0%), Nettó (2,3%) og Bónus (2,0%). Í tilkynningu ASÍ er þó gerður fyrirvari með mælingar í Fjarðarkaupum þar sem tölur fyrir marsmánuð liggja ekki fyrir. Vöruverð í Extra jókst mest milli febrúar og mars, eða um 7,6% en hækkunina má að mestu skýra í ljósi mikillar verðlækkunar verslunarinnar milli janúar og febrúar (-3,9%). Þar á eftir hækkaði verð Krambúðarinnar um 1,4% og vöruverð Nettó um 1,3%. Minnstar mánaðarhækkanir mældust í verslunum Krónunnar og Prís, eða um 0,3 prósent.

Share this article