Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Misjafnt tíðarfar á veðurstofuvetri

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 12.4.2026 | 11:59 Misjafnt tíðarfar á veðurstofuvetri Fremur hægar austlægar áttir voru ríkjandi í janúar og febrúar. Fólk naut lífsins á Tjorninni á þessum fallega febrúardegi. mbl.is/Karítas Sigtryggur Sigtryggsson [email protected] Setja bókamerki Tíðarfar vetrarins 2025 til 2026 var lengi vel óvenju hagstætt landsmönnum en vetrinum lauk svo með umhleypingum og rysjóttri tíð. Þetta má lesa í nýbirtu tíðarfarsyfirliti Veðurstofu Íslands fyrir mánuðina desember til mars, að báðum meðtöldum. Þessa fjóra mánuði telur Veðurstofan til vetrarins þótt sumardagurinn fyrsti sé ekki fyrr en 23. apríl. Er þetta kallað veðurstofuveturinn. Tíðarfar vetrarins var óvenjulega gott lengi framan af segir í yfirlitinu. Desember var sérlega hlýr. Á landsvísu var þetta þriðji hlýjasti desembermánuður frá upphafi mælinga. Tíð var einstaklega góð og það var mjög snjólétt á landinu öllu í lok árs. Þá tók við óvenju einsleitt veðurlag sem ríkti nær allan janúar og febrúar. Fremur hægar austlægar áttir voru ríkjandi og illviðri voru óvenju fátíð miðað við árstíma. Þó nokkuð stíf austanátt var þó viðvarandi við suðausturströndina. Sérlega þurrt og snjólétt var í þessum mánuðum í öllum landshlutum nema á Austurlandi, þar sem úrkoma og snjóalög voru í kringum meðallag. Veðurlagið breyttist Um mánaðamótin febrúar-mars breyttist veðurlagið og við tók rysjóttari tíð. Meðalhiti í Reykjavík í vetur var 1,0 stig, sem er 0,3 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Veturinn er í 31. og 32. sæti yfir hlýjustu vetur frá upphafi samfelldra mælinga í Reykjavík árið 1871. Á Akureyri var meðalhiti vetrarins -0,4 stig, sem er 0,1 stigi yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri var meðalhiti vetrarins í 38. sæti yfir hlýjustu vetur frá upphafi samfelldra mælinga á Akureyri 1881. Veturinn var tiltölulega þurr í Reykjavík. Sérlega þurrt var í janúar og febrúar, en mars var úrkomusamur. Heildarúrkoma vetrarins var 262,3 millimetrar (mm), 75% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist heildarúrkoma í vetrarmánuðunum fjórum 173,8 mm, sem er eins og í Reykjavík 75% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Í Reykjavík voru alhvítir dagar vetrarins 27, sem er 20 færri en að meðaltali 1991 til 2020. Langflestir alhvítu daganna í Reykjavík voru í mars, eða 20 af 27. Aðrir mánuðir voru óvenju snjóléttir. Á Akureyri voru alhvítir dagar 58, sem er 15 færri en að meðaltali 1991 til 2020. Í Reykjavík mældust sólskinsstundir vetrarins 313, sem er 107 stundum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar í vetrarmánuðunum fjórum 159, sem er 40 stundum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Til upprifjunar var tíðarfar vetrarins 2024 til 2025 nokkuð hagstætt. Hitafar var þó nokkuð tvískipt þann vetur. Desember og janúar voru kaldir en febrúar og mars voru hlýir og snjóléttir. Veturinn í heild var tiltölulega hægviðrasamur og tíð góð. Töluvert var þó um illviðri í febrúar. Mikið sunnanhvassviðri gekk yfir landið dagana 5. og 6. febrúar 2025, sem bætist í hóp verstu óveðra síðustu ára. Mars var kaldur Nýliðinn mars var kaldari en að meðallagi undanfarin tíu ár um mestallt land, úrkomusamur, umhleypingasamur og loftþrýstingur lágur. Töluvert var um að veður og færð yllu vandræðum. Mánuðurinn hófst með stórhríð á Austurlandi 2. mars með tilheyrandi samfélagsáhrifum og samgöngutruflunum. Flesta daga mánaðarins var einhvers konar veðurviðvörun í gildi einhvers staðar á landinu og þó nokkuð var um að snjóflóð féllu í mánuðinum. Mikið var um samgöngutruflanir allan mánuðinn, bæði í lofti og á láði, og höfðu því veður og færð mikil samfélagsáhrif þennan mánuðinn. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Á fjórða þúsund hafa verið drepin í stríðinu Halla jákvæðari gagnvart aðgerðunum Misjafnt tíðarfar á veðurstofuvetri Lætur af störfum Listin að: Bjóða upp á ostabakka Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vilhjálmur ósáttur: „Ekkert samtal né samráð“ „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Mest lesið Í gær Í vikunni Væri ekki leyfilegt innan ESB Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu „Friður með íslamska lýðveldinu er verra en helvíti“ Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Bónorð í sól, brúðkaup í frosti Stendur ekki til að fjarlægja hvalinn Til þriggja Kanaríeyja í einni ferð Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Sjö á bráðamóttöku eftir árekstur Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Nýtt útspil Samfylkingar Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Andlát: Elva Dagmar Simundsson Aðgerðunum fálega tekið Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Nýjast á mbl.is » Á fjórða þúsund hafa verið drepin í stríðinu Halla jákvæðari gagnvart aðgerðunum Misjafnt tíðarfar á veðurstofuvetri Lætur af störfum Listin að: Bjóða upp á ostabakka Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vilhjálmur ósáttur: „Ekkert samtal né samráð“ Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Áður grunuð og rannsökuð vegna umsáturseineltis Mest lesið Í gær Í vikunni Væri ekki leyfilegt innan ESB Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu „Friður með íslamska lýðveldinu er verra en helvíti“ Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Bónorð í sól, brúðkaup í frosti Stendur ekki til að fjarlægja hvalinn Til þriggja Kanaríeyja í einni ferð Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Sjö á bráðamóttöku eftir árekstur Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Nýtt útspil Samfylkingar Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Andlát: Elva Dagmar Simundsson Aðgerðunum fálega tekið Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu

Share this article