Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hampiðjan leiddi lækkanir

Read Full Article →

Hluta­bréfa­verð Hampiðjunnar lækkaði um 8% í tæp­lega 300 milljón króna við­skiptum í dag. Dagsloka­gengi félagsins var 104 krónur á hlut en Hampiðjan sendi frá sér neikvæða af­komu­viðvörun eftir lokun markaða í gær. Í af­komu­viðvörun Hampiðjunnar í gærkvöldi kom fram að af­koma fjórða árs­fjórðungs 2025 verði undir væntingum. Drög að upp­gjöri benda til að EBITDA árs­fjórðungsins verði 6–7 milljónir evra, saman­borið við 8,9 milljónir evra á sama tíma­bili árið áður, og að lítils háttar tap kunni að verða á árs­fjórðungnum. Þrátt fyrir þetta áætlar félagið að tekjur sam­stæðunnar hafi vaxið um­tals­vert á árinu. Sam­kvæmt drögum nemur velta ársins tæpum 360 milljónum evra, sem er um 15% aukning milli ára. EBITDA fyrir árið í heild er hins vegar áætluð 39–40 milljónir evra, eða rúm­lega 5% hækkun, sem er minni vöxtur en fyrri árs­hluta­upp­gjör hafi gefið til kynna. Gengi Sjóvá lækkaði síðan um 2% og var dagsloka­gengið 41,4 krónur á hlut en gengi tryggingarfélagsins hefur nú lækkað um 6% síðastliðinn mánuð. Hluta­bréfa­verð Nova lækkaði einnig um tæp 2% og var dagsloka­gengið 4,24 krónur á hlut. Gengi Öl­gerðarinnar, Ocu­lis og Heima lækkaði um rúmt 1%. Úr­vals­vísi­talan lækkaði um 0,15% og var heildar­velta á markaði 2,4 milljarðar.

Share this article