Hlutabréfaverð Hampiðjunnar hefur lækkað um tæp 10% í fyrstu viðskiptum eftir neikvæða afkomuviðvörun í gærkvöldi. Gengi Hampiðjunnar stendur í 102 krónum á hlut þegar þetta er skrifað eftir um 178 milljón króna viðskipti. Stærstu viðskipti dagsins áttu sér stað rétt fyrir tíuleytið þegar 500 þúsund hlutir á genginu 106 krónur skiptumst um hendur. Jafngildir það um 53 milljón króna viðskiptum. Í afkomuviðvörun Hampiðjunnar í gærkvöldi kom fram að afkoma fjórða ársfjórðungs 2025 verði undir væntingum. Drög að uppgjöri benda til að EBITDA ársfjórðungsins verði 6–7 milljónir evra, samanborið við 8,9 milljónir evra á sama tímabili árið áður, og að lítils háttar tap kunni að verða á ársfjórðungnum. Þrátt fyrir þetta áætlar félagið að tekjur samstæðunnar hafi vaxið umtalsvert á árinu. Samkvæmt drögum nemur velta ársins tæpum 360 milljónum evra, sem er um 15% aukning milli ára. EBITDA fyrir árið í heild er hins vegar áætluð 39–40 milljónir evra, eða rúmlega 5% hækkun, sem er minni vöxtur en fyrri árshlutauppgjör hafi gefið til kynna. Hampiðjan gerir ráð fyrir að hagnaður ársins 2025 verði um 5,5–6 milljónir evra, samanborið við 14 milljónir evra árið áður. Félagið bendir á að niðurstaðan skýrist að verulegu leyti af einskiptisliðum og tímabundnum ytri áhrifaþáttum, og að hún hafi ekki áhrif á langtímaáætlun. Í tilkynningu félagsins er tekið fram að sveiflur í gengismun og fjáreignatekjum hafi haft talsverð áhrif. Gengismunur er sagður hafa sveiflast um tæpar 4 milljónir evra milli ára, úr því að vera jákvæður um 2 milljónir evra í það að verða neikvæður um 2 milljónir evra. Þá lækka fjáreignatekjur milli ára úr um 4,6 milljónum evra í um 1,6 milljónir evra. Þar vegur þungt að inneign í íslenskum krónum hafi verið nýtt að hluta við kaup Hampiðjunnar á 75,1% hlut í Kohinoor á Indlandi í byrjun ársins. Sjá einnig Hampiðjan varar við slakari afkomu