Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hampiðjan varar við slakari af­komu

Read Full Article →

Hampiðjan hf. sendi í kvöld frá sér af­komu­viðvörun til Kaup­hallarinnar þar sem fram kemur að af­koma fjórða árs­fjórðungs 2025 verði undir væntingum. Drög að upp­gjöri benda til að EBITDA árs­fjórðungsins verði 6–7 milljónir evra, saman­borið við 8,9 milljónir evra á sama tíma­bili árið áður, og að lítils háttar tap kunni að verða á árs­fjórðungnum. Meiri velta en minni hagnaður Þrátt fyrir þetta áætlar félagið að tekjur sam­stæðunnar hafi vaxið um­tals­vert á árinu. Sam­kvæmt drögum nemur velta ársins tæpum 360 milljónum evra, sem er um 15% aukning milli ára. EBITDA fyrir árið í heild er hins vegar áætluð 39–40 milljónir evra, eða rúm­lega 5% hækkun, sem er minni vöxtur en fyrri árs­hluta­upp­gjör hafi gefið til kynna. Hampiðjan gerir ráð fyrir að hagnaður ársins 2025 verði um 5,5–6 milljónir evra, saman­borið við 14 milljónir evra árið áður. Félagið bendir á að niður­staðan skýrist að veru­legu leyti af ein­skiptisliðum og tíma­bundnum ytri áhrifaþáttum, og að hún hafi ekki áhrif á langtímaáætlun. Gengis­munur og ein­skiptis­kostnaður Í til­kynningu félagsins er tekið fram að sveiflur í gengis­mun og fjár­eigna­tekjum hafi haft tals­verð áhrif. Gengis­munur er sagður hafa sveiflast um tæpar 4 milljónir evra milli ára, úr því að vera jákvæður um 2 milljónir evra í það að verða neikvæður um 2 milljónir evra. Þá lækka fjár­eigna­tekjur milli ára úr um 4,6 milljónum evra í um 1,6 milljónir evra. Þar vegur þungt að inn­eign í ís­lenskum krónum hafi verið nýtt að hluta við kaup Hampiðjunnar á 75,1% hlut í Kohin­oor á Ind­landi í byrjun ársins. Að auki kemur inn í upp­gjörið ein­skiptis­kostnaður upp á um 2,9 milljónir evra vegna lokunar starf­semi í Póllandi og Dan­mörku. Kostnaðurinn tengist hag­ræðingu og samþættingu fram­leiðslu innan sam­stæðunnar, meðal annars með því að flytja stærri hluta grunn­fram­leiðslu til Ind­lands. Minni kvóti hefur áhrif Hampiðjan vísar einnig til þess að sam­dráttur í kvóta í Barents­hafi, ásamt auknum við­skiptaþvingunum á rúss­neskar út­gerðir sem landað hafa í Noregi, hafi haft neikvæð áhrif á af­komu dóttur­félaga. Félagið segir að búast megi við að þorsk­kvóti í Barents­hafi verði aukinn aftur árið 2027. Þá hafi fyrir­huguð kvóta­minnkun í makríl og kol­munna haft áhrif á kaup­vilja út­gerða í veiðarfærum og „sett mark sitt“ á fjórða árs­fjórðung. Sjá einnig Sam­eina fisk­eldis­starf­semina undir ELDI Stór upp­bygging á Ind­landi Í til­kynningunni rekur félagið jafn­framt að mark­visst hafi verið unnið að hag­ræðingu síðustu mánuði, meðal annars með sam­einingu fisk­eldisþjónustu og sölu til fisk­eldis innan sam­stæðunnar í fyrir­tækinu Eldi og undir­búningi fram­leiðslu­upp­byggingar á Ind­landi. Þar sé hafin bygging á um 60.000 fer­metra verk­smiðju­húsnæði fyrir fram­leiðslu á fisk­eldiskvíum og aðra fram­leiðslu sem nú er í Evrópu. Húsnæðið á að verða til­búið í lok sumars, með aukinni fram­leiðslu­getu í kjölfarið, og síðan taki fram á árið 2027 að flytja aðra fram­leiðslu til Ind­lands. Hampiðjan tekur fram að vinna við árs­upp­gjör og endur­skoðun sé enn í gangi og lykil­tölur geti tekið breytingum fram að birtingu. Félagið hyggst birta niður­stöður ársins mið­viku­daginn 5. mars, sam­kvæmt fjár­hags­daga­tali.

Share this article