Þór hafði betur gegn Breiðabliki, 1-0, í eina leik dagsins í Bestu deild karla í fótbolta. Þórsarar fengu fleiri færi í fyrri hálfleik og á 42. mínútu skoraði Christian Greko Jakobsen eftir hornspyrnu. RÚV / Mummi Lú Bæði lið fengu færi í seinni hálfleik og Blikar reyndu að finna jöfnunarmarkið en tókst ekki, 1-0 reyndust lokatölur. Þór er nú í 11. sæti með 15 stig líkt og KA en verri markatölu. FH er í neðsta sæti með 13 stig. KA sækir Keflavík heim á morgun og FH fær KR í heimsókn í lokaleik 17. umferðar. Staðan í Bestu deild karla .